Stjórn RARIK ohf. hefur ákveðið leggja 20 milljónir króna í fyrirtækið Orkuvörð ehf. sem nýtast á til stofnunar orkuskóla á Akureyri. Er þátttakan í tilefni af 60 ára afmæli RARIK og er stærsta samfélagslega verkefni sem RARIK hefur tekið þátt í.
Orkuvörður ehf. hefur það eina hlutverk að stofna og reka sérhæfðan háskóla á sviði endurnýjanlegra orkugjafa, RES- School for Renewable Energy. Mikil þekking er nú þegar til staðar á sviði endurnýjanlegra orkugjafa á Íslandi og með stofnun orkuskólans er tryggt að landið verði áfram í forystuhlutverki í heiminum á sviði endurnýjanlegrar orku.
Undirbúningur að stofnun orkuskóla á Akureyri hefur staðið frá árinu 2004. Stefnt er að því að bjóða upp á B.Sc nám í orkufræðum ásamt eins árs meistaranámi. Gert er ráð fyrir að skólinn hefji starfsemi haustið 2007.
Í afmælishófi í Gerðarsafni sem haldið var í kjölfar aðalfundar og málþings, afhenti Tryggvi Þór Haraldsson forstjóri RARIK, Benedikt Sigurðarsyni frá Orkuverði ehf. yfirlýsingu um þátttöku RARIK.