ao link
Fellivalmynd
Fara á forsíðu vefsvæðis RARIK
Leit
Leit

RARIK í viðbragðsstöðu vegna slæmrar veðurspár

Búist er við slæmu veðri um allt land frá því í nótt/snemma í fyrramálið og búist er við að veðrið geti valdið usla fram eftir degi á morgun föstudaginn 14. febrúar. Miklar líkur eru á að veðrið muni hafa áhrif á afhendingu rafmagns, bæði í dreifikerfi RARIK og landskerfinu (flutningskerfi Landsnets). RARIK er í viðbragðsstöðu til að bregðast við hugsanlegum bilunum á dreifikerfinu.

Endurnýjun loftlínudreifikerfisins með jarðstrengjum hefur verið langstærsta verkefni RARIK frá árinu 1992 og eru 65% kerfisins nú þegar komin í jörð. Sá hluti kerfisins sem er enn í loftlínum, er um 35% og er hann viðkvæmur fyrir þeim veðuráhrifum sem spáð er næstu daga og verður því vaktaður sérstaklega.

 

Þegar búast má við rafmagnstruflunum er ráðlegt að slökkva á þeim raf­magns­tækj­um, sem slökkva ekki á sér sjálf þegar rafmagni slær út og sem geta valdið tjóni þegar rafmagn kem­ur á að nýju. Þetta á meðal annars við um elda­vél­ar og fleiri hit­un­ar­tæki en einnig er ráðlegt að slökkva á viðkvæm­um tækj­um á borð við sjón­vörp. Þá hefur reynst mörgum vel að að eiga vasaljós að grípa til því farsímaljós eru fljót að tæma farsímarafhlöður enda símarnir orkufrekir. Minnum einnig á að rafmagnsleysi getur haft áhrif á fjarskipti og ýmsa þjónustu sem er háð rafmagni.

 

Við sendum út upplýsingar í SMS skilaboðum til þeirra viðskiptavina sem verða rafmagnslausir. Þeir sem eru í netsambandi geta fylgst með stöðu mála í rafdreifikerfinu í kortasjá á forsíðu rarik.is. Bilanavakt er starfrækt allan sólarhringinn og bilanasímanúmer eru talin upp neðst í fæti vefsins.

Var efnið á þessari síðu hjálplegt?

Takk fyrir framlag þitt

Takk fyrir ábendingarnar

Rarik

RARIK ohf.

Dvergshöfða 2
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is

ÞJÓNUSTUVER

Sími: 528 9000

Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15

BILANAVAKT ALLAN SÓLARHRINGINN

Sími: 528 9000

 

 

Fylgdu okkur:

Facebook
Rarik
Við notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á vefnum. Með því að halda áfram að vafra um þessa síðu samþykkir þú notkun okkar á vafrakökum. Smelltu hér fyrir neðan til að fá frekari upplýsingar.
Stillingar