RARIK hefur undanfarið unnið að rafvæðingu Norðfjarðarganga samkvæmt samningi sem gerður var við Vegagerðina 2016. Verið er að ljúka við aðalhluta verksins og stefnt er að spennusetningu næstu daga.
Samtals þjóna sex spennistöðvar göngunum sem eru 7.908 m löng. Fjórar spennistöðvar eru innan ganganna og hinar tvær við gangamunna. Rör voru lögð í göngin milli spennistöðva og sá verktaki vegagerðarinnar um röralögn og ídrátt á háspennustreng í rörin en starfsmenn RARIK önnuðust tengingar. Vinna við háspennustrengslögn gekk vel og lauk því verki í febrúar.
Í framhaldi var hafin vinna við uppsetningu spenna og rofabúnaðar í spennistöðvar sem er nú á lokastigi. Spennistöðvar við gangamunna eru búnar fjarstýranlegum rofabúnaði og verður hægt að reka göngin hvort sem er frá dreifikerfi á Eskifirði eða Norðfirði.
Sími: 528 9000
Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15