Nokkur óveður gengu yfir landið í síðustu viku og virkjaði RARIK neyðarstjórn fyrirtækisins frá þriðjudeginum 7. janúar til og með föstudeginum 10. janúar.
Dreifikerfi RARIK stóðst ágætlega áraunina sem fylgdi þessum lægðum, en það urðu nokkrar truflanir vegna vinds og seltu. Aðstæður til bilanaleitar voru víða erfiðar. Um 7.100 viðskiptavinir RARIK urðu fyrir rafmagnsleysi á þessu tímabili. Flestir voru rafmagnslausir í nokkrar mínútur eða innan við klukkutíma, en á nokkrum stöðum stóð rafmagnsleysið í um og yfir 8 klukkustundir.
Sími: 528 9000
Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15