Birt á vef kl. 12:12:
Mikil ísing var í Skaftárhreppi í nótt þannig að línur slitnuðu og staurar brotnuðu. Einnig er rafmagnslaust í Mýrdal, en þar eru 125 orkukaupendur straumlausir.
Ekki hefur enn fundist bilun í Mýrdal, en verið er að leita hennar. Um 30 bæir í Meðallandi og 35 í Skaftártungum eru rafmagnslausir. Veðrið hefur gengið niður og verið er að því að leita að bilnum þar og undirbúa viðgerð. Í Skaftártungum eru vitað að línan er slitin á a.m.k. tveimur stöðum og í Meðallandi er vitað um þrjá staura brotna og fjögur slit á línum.
Uppfært kl. 16:10:
Enn er straumlaust í hluta af Mýrdal, en búið er að finna bilun. Verið er að útvega efni og gert ráð fyrir að viðgerð verði lokið fyrir kvöldmat. Enn eru 94 viðskiptavinir straumlausir þar.
Í Meðallandi er enn unnið að viðgerð og gert ráð fyrir að henni ljúki ekki fyrr en líður á kvöldið. Þar eru enn 34 viðskiptavinir án rafmagns.
Allir eru hins vegar komnir með rafmagn í Skaftártungu og Álftaveri.
Staða kl. 22:38:
Klukkan 22:38 voru allir komnir með rafmagn í Meðallandi, en truflun í Mýrdal reyndist mun flóknari en leit út fyrir í fyrstu og var ekki að fullu yfirstaðin fyrr en kl. 05:10 þann 17.mars.