Í gær, miðvikudag var hleypt straumi á nýja ofurhleðslustöð sem bílaframleiðandinn Tesla hefur sett upp við Staðarskála í Hrútafirði. Starfsmenn RARIK sáu um að tengja tæplega 2 MW heimtaug við stöðina og er hún fyrsta Teslu stöðin sem tengist dreifikerfi RARIK. Forsvarsmenn Teslu hafa lýst áformum um að setja upp fleiri slíkar stöðvar víðar um land.
Stöðin í Staðarskála er af þriðju kynslóð hleðslutöðva frá Tesla sem eru mun afkastameiri en hefðbundnar hraðhleðslustöðvar og munu nú átta bílar af Teslu gerð geta hlaðið samtímis í Staðarskála allt að 250 kW hver bíll. Einungis Teslur geta nýtt þessa aðstöðu og samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu getur Tesla af gerðinni A3 Longe Range hlaðið á sig orku til 150 km aksturs í stöðinni á einungis fimm mínútum en gert er ráð fyrir að hleðsla bílanna taki að jafnaði um 15 mínútur. Í Staðarskála er fyrir hraðhleðslustöð frá Orku náttúrunnar þar sem bílar af öðrum tegundum geta hlaðið.
Sími: 528 9000
Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15