ao link
Fellivalmynd
Fara á forsíðu vefsvæðis RARIK
Leit
Leit

Ný gjaldskrá fyrir tengigjöld rafmagns 1. ágúst 2022

gjaldskrá fyrir tengigjöld rafmagns hefur tekið gildi frá 1. ágúst 2022.

Fyrri gjaldskrá er frá árinu 2012, ef undan er skilin breyting sem gerð var í upphafi árs 2015 þegar VSK lækkaði í 24% og lækkuðu þá verðin í samræmi við það. Frá 2012 til dagsins í dag hefur byggingavísitala hækkað um rúm 40% þannig að þörf hefur skapast til hækkunar á verðskrá m.t.t. mikillar hækkunar á efnis- og framkvæmdakostnaði. Almenn hækkun í nýrri verðskrá er um 15%, þó einstaka hlutir hækki meira og aðrir minna, enda verðbreytingar á tímabilinu mismiklar eftir efnisflokkum.

 

Þá hefur orðið þróun í notkunarmynstri t.d. með auknu álagi hjá notendum. Til að reyna að jafna álag á fyrirliggjandi kerfi og nýta það sem best eru gerðar ákveðnar breytingar á verðskránni með það fyrir augum að hvetja notendur til þess að fullnýta þrjá fasa frekar en að stækka heimtaugar þar sem það hentar. Með það fyrir augum er þrífösun heimtaugar þar sem þriggja fasa kerfi er til staðar, viðskiptavinum að kostnaðarlausu.

Gjaldskrá fyrir tengigjöld rafmagns nr. 13

Var efnið á þessari síðu hjálplegt?

Takk fyrir framlag þitt

Takk fyrir ábendingarnar

Rarik

Rarik ohf.

Dvergshöfða 2
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is

Þjónustuver

Sími: 528 9000

Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-14

Bilanavakt allan sólarhringinn

Sími: 528 9000

 

 

Fylgdu okkur:

Facebook
Rarik