ao link
Fellivalmynd
Fara á forsíðu vefsvæðis RARIK
Leit
Leit

Ný aðveitustöð í Vík

Ný aðveitustöð hefur verið tekin í notkun í Vík í Mýrdal og er hún mikilvægur liður í að mæta aukinni rafmagnsnotkun í Vík og nærliggjandi sveitum um leið og hún bætir afhendingaröryggi rafmagns.

Mikil uppbygging hefur verið á svæðinu undanfarið og því þörf á að endurnýja og efla búnaðinn. Stöðin sem var spennusett 6. september sl. er með 19 og 33 kV rofabúnað auk 33/19 kV spennis og annar hún ríflega þrefalt meira álagi en sú eldri. Gamla aðveitustöðin sem hefur þjónað Vík og nágrenni frá árinu 1982 verður lögð niður en í húsnæði hennar verður áfram starfrækt varaaflsstöð. Kostnaðaráætlun fyrir verkið í heild var 191,6 milljónir króna og þó að uppgjöri sé ekki að fullu lokið er ljóst að áætlunin mun standa.

Ný aðveitustöð í Vík
Nýja aðveitustöðin í Vík annar ríflega þrefalt meira álagi en sú eldri.
Ný aðveitustöð í Vík

Var efnið á þessari síðu hjálplegt?

Takk fyrir framlag þitt

Takk fyrir ábendingarnar

Rarik

RARIK ohf.

Dvergshöfða 2
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is

ÞJÓNUSTUVER

Sími: 528 9000

Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15

BILANAVAKT ALLAN SÓLARHRINGINN

Sími: 528 9000

 

 

Fylgdu okkur:

Facebook
Rarik
Við notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á vefnum. Með því að halda áfram að vafra um þessa síðu samþykkir þú notkun okkar á vafrakökum. Smelltu hér fyrir neðan til að fá frekari upplýsingar.
Stillingar