Á þriðjudaginn 8. júní 2021 var tekin í notkun ný aðveitustöð RARIK að Hnappavöllum í Öræfasveit sem mun auka afkastagetu og afhendingaröryggi rafmagns á svæðinu til muna. Rafmagnsálag í Suðursveit og Öræfum hefur aukist verulega síðustu ár samfara fjölgun ferðamanna og með tilkomu hótels sem opnað hefur verið á Hnappavöllum.
Forsenda þess að hægt var að reisa nýja aðveitustöð á svæðinu var að Landsnet leggði til nýjan afhendingarstað raforku frá byggðalínu á Hnappavöllum, en áður var raforka fyrir þetta svæði afhent frá Hólum í Hornafirði. Frá Hólum er um 130 km 19 kV háspennulögn að Skaftafelli sem annað hefur raforku á svæðinu vestan Hornarfjarðarfljóts, það er Mýrum, Suðursveit og Öræfum. Þar af eru um 120 km í háspennujarðstreng. Þegar undirbúningur að hótelinu á Hnappavöllum hófst árið 2015 var strax ljóst að 19 kV kerfið myndi ekki annað þeirri aukningu sem því fylgdi án sérstakra aðgerða. Því óskaði RARIK eftir að Landsnet leggði til nýjan afhendingastað frá byggðalínunni í Öræfum og á meðan beðið hefur verið eftir varanlegri lausn hefur RARIK gripið til margvíslegra bráðabirgðalausna til að anna álaginu, m.a. með því að hafa þar varaaflstöð til að framleiða inn á kerfið á mesta álagstíma.
Nýr afhendingarstaður Landsnets og aðveitustöð RARIK sem nú hafa verið tekin í notkun eru undir Kvíáröldu austan við bæinn Hnappavelli, sem telst trygg staðsetningin með tilliti til hugsanlegra jökulflóða. Byggt er yfir allan búnað RARIK og Landsnets á Hnappavöllum og eru þrír 132 kV gaseinangraðir rofar í tengibúnaði Landsnets en í aðveitustöð RARIK er 10MVA 132/19 kV aflspennir og sex 19 kV rofaskápar.
„Með nýjum raforkuvirkjum RARIK og Landsnets á Hnappavöllum verður hægt að mæta verulega auknu álagi í Suðursveit og Öræfum, en raforkuflutningur inn á það svæði er nú bæði frá Hólum og Hnappavöllum. Það er því vel séð fyrir orkuþörf svæðisins til langrar framtíðar um leið og dregið er úr líkum á rafmagnstruflunum,“ segir Tryggvi Þór Haraldsson forstjóri RARIK.
Sími: 528 9000
Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15