Lagningu RARIK á jarðstreng í stað loftlína á Tjörnesi miðar vel. Verkið hófst 27. maí við Kvíslarhól og nú um miðjan júní er um 70% verksins lokið og búið að leggja um 14 af þeim 20 km sem áætlaðir eru.
Erfiðasti kaflinn er þó eftir því búast má við að töluvert þurfi að fleyga á þeirri leið sem eftir er áður en verkinu lýkur við Mánarbakka. Stefnt er að því að verkinu verði lokið og búið að tengja nýja strenginn um miðjan júlí.
Að því loknu mun verktakinn, Vökvaþjónusta Kópaskers, flytja sig yfir á Melrakkasléttu þar sem áætlað er að leggja um 18km. jarðstreng í stað loftlína. Bæði þessi svæði urðu mjög illa úti í óveðrinu í desember í fyrra og skiptir íbúa á svæðinu miklu að vera komnir með jarðstreng í stað loftlína fyrir næsta vetur.
Sími: 528 9000
Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15