Um þessar mundir stendur yfir borun á fjórðu vinnsluholunni á Reykjum við Húnavelli vegna viðbótarvatnsöflunar fyrir hitaveitu Blönduóss og Skagastrandar.
Á grundvelli niðurstöðu rannsóknarborana í árslok 2018 var staðsetning þessarar holu sem mun verða 1.200 m djúp ákveðin. Áætlað er að borun ljúki í janúar eða febrúar 2020 og verði árangur fullnægjandi mun það auka rekstraröryggi veitunnar til framtíðar. Borverktaki er Ræktunarsamband Flóa og Skeiða.
Sími: 528 9000
Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15