Um 600 nemendur í 9. og 10. bekkjum grunnskóla Akureyrarbæjar og nærsveita voru saman komnir á árlegri starfamessu á Akureyri, föstudaginn 10. febrúar sl. Starfsmenn RARIK létu sig ekki vanta enda kærkomið tækifæri til að kynna margvíslega starfsemi fyrirtækisins fyrir unga fólkinu.
Starfamessan sem haldin er nú í fjórða sinn hefur átt velgengni að fagna og eru uppi hugmyndir um að bjóða einnig nemendum á framhaldsskólastigi þegar fram í sækir.
Markmiðið með deginum er að veita nemendum möguleika á að komast í tengingu við atvinnulífið á svæðinu og veita innsýn í það hvaða færni og menntun liggja til grundvallar þeirra margvíslegu starfa sem það býður upp á.
Sími: 528 9000
Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15