ao link
Fellivalmynd
Fara á forsíðu vefsvæðis RARIK
Leit
Leit

Ekkert tilboð í stækkun hitaveitukerfis í Hornafirði

Ekkert tilboð barst í stækkun dreifikerfis og lagningu heimæða á Höfn og í dreifbýli á vegum Hitaveitu RARIK í Hornafirði en frestur til að skila inn tilboðum rann út nýlega. Því er ljóst að tafir verða á fyrirhugaðri stækkun innanbæjarkerfis hitaveitunnar á Höfn og er nú unnið að því að endurskipuleggja verkþætti og fyrri tímaáætlanir verksins.

Framkvæmdir við lagningu 20 km stofnlagnar hitaveitunnar frá Hoffelli til Hafnar í Hornafirði ásamt byggingu dælustöðva og stjórnhúss er hins vegar í fullum gangi og er áætlað að hitaveitan taki til starfa síðar á þessu ári, að því gefnu að öll tilskilin leyfi fáist. Fyrst um sinn munu um 2/3 hlutar húsa á Höfn sem í dag tengjast fjarvarmaveitu RARIK á Höfn tengjast hitaveitunni. Einnig er áætlað að íbúar í dreifbýli tengist á þessu ári. Gert var ráð fyrir að tengingu nýrra notenda við hitaveituna á Höfn hæfist á þessu ári en nú er ljóst að það mun tefjast eitthvað.

Fyrirhuguð stækkun dreifikerfis hitaveitu á Höfn
Fyrirhuguð stækkun dreifikerfis hitaveitu á Höfn.
Kyndistöðin á Höfn séð úr lofti
Kyndistöð RARIK á Höfn
Efni í stofnpípulögn við kyndistöð RARIK á Höfn
Efni í stofnpípulögn við kyndistöð RARIK á Höfn

Var efnið á þessari síðu hjálplegt?

Takk fyrir framlag þitt

Takk fyrir ábendingarnar

Rarik

RARIK ohf.

Dvergshöfða 2
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is

ÞJÓNUSTUVER

Sími: 528 9000

Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15

BILANAVAKT ALLAN SÓLARHRINGINN

Sími: 528 9000

 

 

Fylgdu okkur:

Facebook
Rarik
Við notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á vefnum. Með því að halda áfram að vafra um þessa síðu samþykkir þú notkun okkar á vafrakökum. Smelltu hér fyrir neðan til að fá frekari upplýsingar.
Stillingar