ao link
Fellivalmynd
Fara á forsíðu vefsvæðis RARIK
Leit
Leit

Breytingar á verðskrám 1. apríl 2020

Eftirfarandi breytingar verða á verðskrám RARIK 1. apríl 2020.

Verðskrá RARIK fyrir flutnings- og dreifikostnað raforku:

 

Í samræmi við breytingar á dreifbýlisframlagi úr 2,02 kr/kWst í 1,98 kr/kWst sem Orkustofnun tilkynnti RARIK nýlega og gildi tekur 1. apríl næstkomandi hefur RARIK gert breytingar á verðskrá sinni. Umrædd breyting hefur í för með sér hækkun á dreifikostnaði til almennra notenda sem lækkun dreifbýlisframlagsins nemur. Frá sama tíma munu niðurgreiðslur á húshitun hækka sem nemur sömu upphæð.

 

Verðskrá fyrir innmötun raforku:

 

Verðskrá RARIK fyrir innmötun raforku frá virkjunum mun breytast frá og með 1. apríl 2020 til samræmis við breytta verðskrá Landsnets frá sama tíma. Um er að ræða ársfjórðungslega breytingu í verðskrá Landsnets sem hefur áhrif á innmötunarverðskrá RARIK á þann veg að tapaþáttur lækkar um 6,94% og verður 99,85 kr/MWst auk vsk. Aðrir liðir breytast ekki.

Verðskrá fyrir flutning og dreifingu raforku (nr. 26b)
Verðskrá fyrir innmötun raforku nr. 35

Var efnið á þessari síðu hjálplegt?

Takk fyrir framlag þitt

Takk fyrir ábendingarnar

Rarik

RARIK ohf.

Dvergshöfða 2
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is

ÞJÓNUSTUVER

Sími: 528 9000

Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15

BILANAVAKT ALLAN SÓLARHRINGINN

Sími: 528 9000

 

 

Fylgdu okkur:

Facebook
Rarik