ao link
Fellivalmynd
Fara á forsíðu vefsvæðis RARIK
Leit
Leit

Breyting á gjaldskrá í október 2022

Við höfum breytt gjaldskrá okkar vegna raforkudreifingar frá 1. október 2022. Um er að ræða 9% hækkun á töxtum í þéttbýli og 6,5% hækkun á töxtum í dreifbýli, að undanskildum töxtum vegna ótryggðar dreifingar og afltaxta VA730 sem hækka um sömu krónutölu og sambærilegir taxtar í þéttbýli. Umrædd breyting á gjaldskrá er til að mæta kostnaðarhækkunum.

Þrátt fyrir töluverða uppbyggingu á dreifkerfi rafmagns á undanförnum árum, m.a. með jarðstrengjavæðingu hefur gjaldskrá í þéttbýli lækkað um 8% að raunvirði þegar horft er til síðustu 10 ára.

 

Fyrir almenna gjaldskrá í dreifbýli hefur hlutur notenda á síðustu árum lækkað um 11% að teknu tilliti til verðlags og þátttöku stjórnvalda með dreifbýlisframlagi.

 

Við störfum undir nánu eftirliti hins opinbera þar sem raforkudreifing er sérleyfisstarfsemi. Orkustofnun reiknar okkur leyfðar tekjur (tekjumörk) á hverju ári sem eru jafnframt gerðar upp með svokölluðu uppgjöri tekjumarka í september ár hvert. Þá ber Orkustofnun leyfðar tekjur Rarik saman við raunverulega tekjur fyrirtækisins. Þrátt fyrir þessa hækkun sjáum við ekki fram á að fullnýta þær tekjur sem Orkustofnun úthlutar fyrirtækinu á árinu 2022.

 

Orkustofnun gerði nýlega upp leyfðar tekjur Rarik vegna ársins 2021 (uppgjör tekjumarka) með bréfi dags. 1. september sl. Stofnunin fjallaði um nýafstaðið uppgjör tekjumarka þar sem einnig má kynna sér uppgjörið nánar. Eins og fram kemur í fréttatilkynningu Orkustofnunar nýttum við ekki þær tekjur sem Orkustofnun úthlutaði árið 2021.


Gjaldskrá Rarik fyrir dreifingu og flutning raforku (nr. 32 - útg. 01.10.2022)

Var efnið á þessari síðu hjálplegt?

Takk fyrir framlag þitt

Takk fyrir ábendingarnar

Rarik

Rarik ohf.

Dvergshöfða 2
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is

Þjónustuver

Sími: 528 9000

Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-14

Bilanavakt allan sólarhringinn

Sími: 528 9000

 

 

Fylgdu okkur:

Facebook
Rarik