ao link
Fellivalmynd
Fara á forsíðu vefsvæðis RARIK
Leit
Leit

Breyting á gjaldskrá fyrir innmötun raforku frá 1. apríl 2022

Gjaldskrá okkar fyrir innmötun breytist frá og með 1. apríl til samræmis við breytta innmötunargjaldskrá Landsnets fyrir virkjanir frá sama tíma.

Taka þær breytingar mið af tillögum vinnuhóps Atvinnuvega‐ og nýsköpunarráðuneytisins um breytingar á starfsumhverfi smávirkjana frá síðasta ári. Felast breytingarnar í að allar virkjanir greiða nú innmötunargjald í samræmi við stærð að teknu tilliti til fyrirvara sem fram koma í skýrslu vinnuhóps um gjaldaumhverfi smávirkjana. Aflgjald í gjaldskrá okkar verður hið sama og í gjaldskrá Landsnets.

 

Jafnframt fellur niður B-hluti gjaldskrár þar sem tilgreind eru einingarverð endurgreiðslu ávinnings vegna lægri flutningsgjalda dreifiveitu, sbr. ákvæði raforkulaga 4.mgr. 17.gr.a., en nýtt ákvæði  bætist við skýringarkafla sem fjallar um þá endurgreiðslu. Jafnframt eru vinnslueiningar allt að 16 A að stærð nú undanskildar gildissviði gjaldskrárinnar.

 

Var efnið á þessari síðu hjálplegt?

Takk fyrir framlag þitt

Takk fyrir ábendingarnar

Rarik

Rarik ohf.

Dvergshöfða 2
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is

Þjónustuver

Sími: 528 9000

Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-14

Bilanavakt allan sólarhringinn

Sími: 528 9000

 

 

Fylgdu okkur:

Facebook
Rarik