ao link
Fellivalmynd
Fara á forsíðu vefsvæðis RARIK
Leit
Leit

Breyting á gjaldskrá 1. janúar 2022

Eftirfarandi breyting verður á gjaldskrá okkar 1. janúar 2022:

Gjaldskrá okkar fyrir flutnings- og dreifikostnað raforku hækkar

Í gjaldskrá fyrir flutnings- og dreifikostnað raforku verða eftirfarandi breytingar frá og með 1. janúar 2022:

  • Almennir orkutaxtar og minni afltaxtar (VA11X og VA21X) í þéttbýli hækka um 6,3%
  • Almennir orkutaxtar og minni afltaxtar (VA13X og VA23X) í dreifbýli hækka um 5,8%.
  • Aðrir taxtar og þjónustugjöld bæði í þéttbýli og dreifbýli hækka um 6%

Fyrir sléttu ári hækkaði gjaldskrá dreifingar hjá okkur að jafnaði um 2,8%, en Landsnet hækkaði gjaldskrá sína á sama tíma um 9,9%. Flutningskostnaður Landsnets er innifalinn í gjaldskrá okkar og á þeim tíma dugði hækkunin ekki til að standa undir hækkuðum tilkostnaði vegna hækkunar Landsnets. Hækkun okkar nú tekur mið af því, ásamt verðlagsbreytingum og áformaðri lækkun á gjaldskrá Landsnets þann 1. apríl nk.

 

Jöfnunargjald hækkar og framlag til verðjöfnunar aukið

Við afgreiðslu fjárlaga fyrir 2022 var framlag til verðjöfnunar í dreifbýli aukið um 247,2 mkr. Til að fjármagna það er jöfnunargjald hækkað frá áramótum úr 0,34 kr/kWst í 0,41 kr/kWst og jöfnunargjald vegna skerðanlegrar raforkudreifingar hækkað úr 0,11 kr/kWst í 0,13 kr/kWst. Í framhaldi af þessu hefur Orkustofnun ákveðið að frá áramótum breytist dreifbýlisframlag til viðskiptavina okkar í dreifbýli úr 32,5% í 30%.


Gjaldskrá fyrir flutning og dreifingu raforku (nr. 30)

Var efnið á þessari síðu hjálplegt?

Takk fyrir framlag þitt

Takk fyrir ábendingarnar

Rarik

Rarik ohf.

Dvergshöfða 2
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is

Þjónustuver

Sími: 528 9000

Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-14

Bilanavakt allan sólarhringinn

Sími: 528 9000

 

 

Fylgdu okkur:

Facebook
Rarik