Við viljum vekja athygli á því að orkureikningur frá Rarik er ekki sendur til birtingar i heimabönkum. Hann birtist í heimabanka sem krafa, en það er ekki hægt að sjá reikninginn sundurliðaðann eins og áður.
Þessi ákvörðun er einn liður í sparnaði fyrirtækisins, en við þurfum að greiða bönkum og sparisjóðum þjónustugjald fyrir birtingu reikninga.
Rarik rekur Viðskiptavef á vef fyrirtækisins. Þar er hægt að skoða orkureikninga, notkun og jafnframt senda inn álestur. Til að komast inn á þennan vef þarf að skrá inn notandanafn og lykilorð. Sendið okkur tölvupóst á rarik@rarik.is og fáið lykilorðið sent til ykkar eða hafið samband við þjónustuver Rarik í síma 528-9000.
Dvergshöfða 2
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is
Sími: 528 9000
Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-14