Á vef RARIK hefur verið opnaður aðgangur að framkvæmdavefsjá fyrirtækisins þar sem hægt verður að nálgast samræmdar upplýsingar um helstu framkvæmdir á vegum RARIK um allt land.
Með framkvæmdavefsjánni vill RARIK tryggja betra aðgengi almennings að upplýsingum um ýmiss verkefni sem eru í vinnslu og sýna stöðu þeirra eins og hún er á hverjum tíma. Upplýsingarnar verða uppfærðar eftir því sem verkefnum vindur fram allt þar til þeim er lokið. Í vefsjánni munu birtast upplýsingar um endurnýjun dreifi- og stofnlínukerfa í dreifbýli hvort sem þau eru á áætlun RARIK um langtíma endurnýjun dreifikerfisins, eru kostuð af notendum eða eru hluti af átaksverkefnum ríkisstjórnarinnar. Þá verða birtar upplýsingar um verkefni sem tengjast endurnýjun búnaðar í aðveitustöðvum og byggingu nýrra aðveitustöðva.
Framkvæmdavefsjána er að finna á Kortasjá á forsíðu vefsins rarik.is. Ef smellt er á framkvæmdaflipa kortasjárinnar opnast framkvæmdavefsjáin og þá birtast framkvæmdir á korti sem hægt er að smella á til að fá nánari lýsingu á einstaka verki auk upplýsinga um verktíma, lengd, legu, spennu jarðstrengs o.fl.
Meðfylgjandi myndir eru frá tveimur þeirra framkvæmda sem unnið hefur verið að í sumar á vegum RARIK og sem hægt er að sækja upplýsingar um í framkvæmdavefsjá. Annars vegar úr Norðurárdal í Borgarfirði en hins vegar frá Hólasandi í Mývatnssveit:
Sími: 528 9000
Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15