ao link
Fellivalmynd
Fara á forsíðu vefsvæðis RARIK
Leit
Leit

Árshlutareikningur RARIK fyrstu sex mánuði ársins 2020

Hagnaður af starfsemi RARIK nam 424 milljónum króna á fyrri helmingi ársins, sem er um 66% lækkun á milli ára.

Rekstrarhagnaður af starfsemi RARIK fyrir fjármagnsliði (EBIT) á fyrri hluta ársins 2020 var 1.039 milljónir króna en var 1.616 milljónir króna á fyrri helmingi ársins 2019. Rekstrartekjur lækkuðu um 2,3% miðað fyrra ár og rekstrargjöld með afskriftum hækkuðu um 5,7% og voru hærri en áætlanir gerðu ráð fyrir vegna mikilla tjóna í ársbyrjun.

 

Fjármagnsliðir voru neikvæðir um 1.014 milljónir króna á tímabilinu, samanborið við 735 milljónir króna fyrri hluta ársins 2019. Hækkunin skýrist aðallega af gengisbreytingum.

 

Áhrif hlutdeildarfélagsins Landsnets voru jákvæð um 404 milljónir króna, samanborið við 538 milljónir króna á fyrri hluta síðasta árs.

 

Samkvæmt rekstrarreikningi var hagnaður á tímabilinu 424 milljónir króna samanborið við 1.243 milljónir króna á fyrri helmingi ársins 2019.

 

Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) var 2.256 milljónir króna eða 27,6% af veltu tímabilsins, samanborið við 32,5% af veltu á sama tímabili árið áður. Hreint veltufé frá rekstri, fyrir vexti og skatta, var 2.195 milljónir króna samanborið við 2.640 milljónir króna á sama tímabili árið 2019.

 

Heildareignir RARIK samkvæmt efnahagsreikningi 30. júní 2020 námu 69.450 milljónum króna og heildarskuldir námu 23.556 milljónum króna. Eigið fé nam 45.894 milljónum króna og eiginfjárhlutfall því 66% samanborið við 64% í ársbyrjun.

 

Fjárfestingar ársins eru áætlaðar um 7,4 milljarðar, sem er talsvert meira en undanfarin ár.

 

Horfur í rekstri RARIK á árinu 2020 eru ágætar, en Kórónaveiran veldur ákveðinni óvissu. Fjárhagsleg áhrif Kórónaveirunnar á rekstur RARIK eru ekki veruleg eins og stendur, en vænta má að þau muni fylgja því hver verður framtíðarþróun efnahagslífsins hér á landi. Faraldurinn veldur áfram margvíslegri óvissu í rekstri RARIK, en allar aðgerðir miðast við að tryggja áfram öryggi í rekstrinum og að halda starfseminni eins lítið breyttri og mögulegt er.

 

Gert er ráð fyrir að afkoma fyrir fjármagnsliði á seinni hluta ársins verði í samræmi við áætlanir. Ekki er búist við sambærilegum áföllum vegna tjóna á seinni hluta ársins og fyrirtækið varð fyrir á fyrri hluta þess, sem voru meiri en verið hafa síðustu tvo áratugi. Gert er ráð fyrir að heildarafkoma fyrirtækisins verði betri á seinni árshelmingi þessa árs og því jákvæð á árinu 2020.

 

Árshlutareikningur RARIK ohf. er gerður samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum.

Helstu stærðir samstæðureiknings RARIK, allar fjárhæðir í milljónum króna

Helstu stærðir samstæðureiknings RARIK, allar fjárhæðir í milljónum króna

 

Árshlutareikningur RARIK fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2020 var samþykktur á fundi stjórnar þann 27. ágúst 2020.

 

Nánari upplýsingar veitir Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri RARIK í síma 528-9000.

Árshlutareikningur 30. júní 2020

Var efnið á þessari síðu hjálplegt?

Takk fyrir framlag þitt

Takk fyrir ábendingarnar

Rarik

RARIK ohf.

Dvergshöfða 2
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is

ÞJÓNUSTUVER

Sími: 528 9000

Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15

BILANAVAKT ALLAN SÓLARHRINGINN

Sími: 528 9000

 

 

Fylgdu okkur:

Facebook
Rarik
Við notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á vefnum. Með því að halda áfram að vafra um þessa síðu samþykkir þú notkun okkar á vafrakökum. Smelltu hér fyrir neðan til að fá frekari upplýsingar.
Stillingar