Aðalfundur RARIK ohf var haldinn á Akureyri sl. föstudag. Í máli Tryggva Þórs Haraldssonar forstjóra kom fram að tap var á rekstri RARIK samstæðunnar á árinu 2007 sem nemur 191 miljón króna. Tap hlutdeildarfélagsins Landsnets hf vegur þar þungt, eða 178 miljónum króna, en á móti skilaði Orkusalan ehf hagnaði. RARIK á rúm 22% í Landsneti, en 99% í Orkusölunni.
Tveir nýir stjórnarmenn voru skipaðir af fjármálaráðherra, þeir Árni Steinar Jóhannsson og Valdimar Guðmannsson. en úr stjórn gegnu þau Elín Líndal og Sveinn Þórarinsson, sem var stjórnarformaður í 10 ár eða frá 1997 til vorsins 2007. Hilmar Gunnlaugsson, sem var endurkjörinn formaður, þakkaði þeim Elínu og Sveini fyrir vel unnin störf og góða viðkynningu. Ingibjörg Sigmundsdóttir var kjörinn varaformaður á fyrst fundi hinnar nýju stjórnar.
Að loknum aðalfundi var haldinn vel heppnaður samráðsfundur með sveitarstjórnarmönnum af Norðurlandi þar sem spurningum var svarað um hin ýmsu mál sem varðar samskipti RARIK og sveitarfélaga. Í lok fundar var undirritaður samningur um stuðning RARIK við menningarmál á Norðurlandi.
Sími: 528 9000
Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15