- Notum símann og vefinn
RARIK reynir nú áfram að minnka sem mest líkur á að starfsmenn fyrirtækisins smitist af COVID-19 veirunni þannig að hægt verði að halda grunnstarfsemi þess óskertri. Því telur RARIK rétt að árétta að skrifstofur fyrirtækisins í Reykjavík verði áfram lokaðar tímabundið fyrir öðrum en starfsmönnum. Einnig verða skrifstofur á landsbyggðinni lokaðar ef þurfa þykir.
Þjónusta við viðskiptavini verður veitt áfram í gegnum síma fyrirtækisins, 528 9000, hér á rarik.is og/eða tölvupóst á rarik@rarik.is og gerum við ráð fyrir að geta sinnt öllum erindum viðskiptavina með þeim hætti.
Við vonumst til að viðskiptavinir sýni þessari aðgerð skilning og taki þátt í því með okkur að komast í gengum þessar sérstöku aðstæður.
Sími: 528 9000
Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15