ao link
Fellivalmynd
Fara á forsíðu vefsvæðis RARIK
Leit
Leit

43 km jarðstrengur í Meðallandi

Í síðustu viku var lokið við að plægja um 43 km háspennustreng frá Eystra Hrauni að Melhóli í Meðallandi í V-Skaftafellssýslu. Verkið hófst 8 júlí sl. og gekk vonum framar. Nú er unnið að samsetningu háspennustrengsins og að uppsetningu rofa- og spennistöðva en 23 spennistöðvar eru á þessari leið.

Stefnt er að því að verkinu ljúki um miðjan október og verður þá aflögð eins vírs loftlína sem hefur þjónað svæðinu frá árinu 1973. Viðskiptavinum RARIK gefst þá kostur á þriggja fasa rafmagni auk þess sem afhendingaröryggi rafmagns mun aukast til muna en á undanförnum árum hefur tjón á loftlínum vegna óveðurs á þessu svæði, valdið talsverðu rafmagnsleysi.

 

Samhliða háspennustrengnum var lagt ljósleiðararör og verður ljósleiðari væntanlega dreginn í það og tengdur

Jarðstrengur plægður að veiðihúsi við Eldhraun.
Jarðstrengur plægður að veiðihúsi við Eldhraun.
Ljósleiðararör var plægt meðfram háspennujarðstrengnum.
Ljósleiðararör var plægt meðfram háspennujarðstrengnum.
Alls voru plægðir 43 km af háspennujarðstreng í Meðallandi.
Alls voru plægðir 43 km af háspennujarðstreng í Meðallandi.
Uppsetning rofa- og spennustöðva í Meðallandi.
Starfsmenn RARIK að vinnu við uppsetningu rofa- og spennistöðva og samsetningu jarðstrengsins.

Var efnið á þessari síðu hjálplegt?

Takk fyrir framlag þitt

Takk fyrir ábendingarnar

Rarik

RARIK ohf.

Dvergshöfða 2
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is

ÞJÓNUSTUVER

Sími: 528 9000

Opið:
Mán-fim 9-16 og fös 9-15

BILANAVAKT ALLAN SÓLARHRINGINN

Sími: 528 9000

 

 

Fylgdu okkur:

Facebook
Rarik