Forsíða
Um RARIK  |   Veftré  |  Fyrirspurnir  |  Vefpóstur starfsmanna

English version
Heimili Fyrirtæki Fréttir Viðskiptavefur







Forsíða






Um RARIK






Bækistöðvar






Stefnumið og stjórn






Starfsmenn






Viðskiptaver






Reiknivélar






Umhverfismál






Dótturfélög






Hafðu samband






Kennimark RARIK






Stjórnskipurit






Eyðublöð






Gagnasafn





Umhverfismál

Umhverfisstefna RARIK



1. Verndun umhverfis og lífríkis er hagsmunamál allra. RARIK leggur metnað sinn í að umhverfisvernd verði ávallt höfð til hliðsjónar við stefnumótun og framtíðarþróun fyrirtækisins, rekstur og framkvæmdir. Markmið fyrirtækisins er að nýta orkuauðlindir landsins í þágu þjóðar og í sátt við umhverfið.

2. Markvisst skal unnið að umbótum á stefnu fyrirtækisins í umhverfismálum og starfsháttum, þar sem m.a. er tekið tillit til fenginnar reynslu, tækniþróunar, rannsókna, þarfa viðskiptavinarins og væntinga þjóðfélagsins.

3. Stefnu RARIK í umhverfismálum skal miðlað til starfsmanna og þeir hvattir til að taka virkan þátt í umræðu og þróun stefnumótunar og markmiðssetningar fyrirtækisins.

4. RARIK vill taka þátt í rannsóknum á hugsanlegum áhrifum á umhverfið frá hráefni, fram-leiðslu, vinnuferlum og úrgangi sem tengist starfsemi fyrirtækisins og hvernig megi draga úr sóun, mengun og spjöllum á vistkerfinu.

5. Í starfsemi RARIK skal tekið tillit til hagkvæmrar notkunar aðfanga, endurnýtingar efnis og tækjabúnaðar þar sem það á við og ábyrgrar förgunar á úrgangi.

6. Verndun umhverfisins skal ávallt höfð í fyrirrúmi við hönnun og mat á framkvæmdum og þjónustu á vegum fyrirtækisins. Hönnun og framkvæmd skulu miða að því að valda sem minnstri röskun á umhverfinu og lífríki þess.

7. Ávallt skal haft samráð við þá sem framkvæmdir snerta og miðað að því að lágmarka jarðrask og ónæði á meðan á framkvæmd stendur. Að verki loknu skal frágangur vera til fyrirmyndar. Við alla vinnu, framkvæmdir og frágang eftir þær skal gæta þess að spilla ekki umhverfinu.

8. RARIK mun ráðleggja, og þar sem það á við, fræða viðskiptavini og almenning um örugga notkun, dreifingu og meðhöndlun raforku.

9. RARIK mun hvetja til og, þar sem það á við, krefjast umbóta til samræmis við stefnu fyrirtækisins hjá þeim verktökum sem vinna á vegum og/eða í nafni fyrirtækisins. Jafnframt mun RARIK hvetja verktaka og birgja til að taka upp eða sýna fram á ábyrga stefnu í umhverfismálum.

10. RARIK vill miðla þekkingu sinni og reynslu á umhverfismálum innan orkuiðnaðarins og meðal almennings, stuðla að opinni umræðu um hvað megi betur fara og taka þátt í stefnu-mótandi vinnu sem lýtur að verndun umhverfis og lífríkis.

11. Fyrirtækið mun meta árangur umhverfisstefnunnar og miðla upplýsingum til starfsmanna og viðeigandi aðila.




Allar gildandi verðskrár RARIK
Eyðublöð
Reiknivélar
Fjölmiðlaver
Er rafmagnið í lagi? Ef svo er ekki, hvetjum við þig til að fylla út kvörtunarformið okkar.
RARIK Orkuþróun
Fara á forsíðu

RARIK
Bíldshöfða 9
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is
 Skiptiborð:
Samband við öll svið
Sími: 528 9000
Fax: 528 9009
Opið: 08:00-16:00


BILANAVAKT allan sólarhringinn
Vesturland: 528 9390
Norðurland: 528 9690
Austurland: 528 9790
Suðurland: 528 9890