|
Umhverfið
Birkiskógar þekja í dag einungis um 1% landsins, en þá er að finna í flestum landshlutum, allt frá sjávarmáli og upp í 620 metra hæð.
Útlit og eiginleikar birkis á Íslandi er afar margbreytilegt. Kræklóttir, margstofna runnar eru algengastir, en sums staðar má finna stórvaxin skógartré sem verða allt að 12 metra há.
Af hverju stafar þessi mikli breytileiki?
Er skýringanna að leita í mismunandi umhverfisaðstæðum á vaxtarstöðum birkisins, svo sem mismunandi veðurfari eða jarðvegsgerð, eða er skýringuna að finna í erfðaefni trjánna?
Markmið rannsóknanna, sem RARIK styður, er að kanna breytileika birkis með því að bera saman vöxt og þrif þess á 8 tilraunastöðum. Til að leita skýringa á breytileikanum hefur fræi verið safnað af birki á 53 stöðum um allt land.
Þekking á sérstöðu og skyldleika birkisins á einstökum landsvæðum og milli landsvæða er forsenda fyrir ákvörðunum er varða ræktun, meðferð, nýtingu og verndun birkiskóganna.
|