Orkusalan ehf. var stofnuð 10. mars 2006 en formleg starfsemi hennar hófst 1. febrúar 2007. Orkusalan er dótturfyrirtæki RARIK og er tilgangur þess fyrst og fremst að sjá um kaup, sölu og framleiðslu raforku í smásölu. Með breytingum á raforkulögum í janúar 2005 var sala á raforku gefin frjáls. Samkeppni var innleidd í raforkuframleiðslu og raforkusölu en flutningur frá virkjun til neytenda er eftir sem áður háður einkaleyfi. Við stofnun Orkusölunnar hætti RARIK raforkusölu en sér eftir sem áður um dreifingu raforku á sínum svæðum.
Markmið Orkusölunnar er að vera leiðandi fyrirtæki í sölu raforku og þjónustu við raforkukaupendur.
Framkvæmdastjóri Orkusölunnar er Magnús Kristjánsson.
Orkusalan ehf. er með starfsstöðvar á fjórum stöðum á landinu, Reykjavík, Akureyri, Egilsstöðum og Selfossi.
Virkjanir í eigu Orkusölunnar eru Rjúkandavirkjun, Skeiðsfossvirkjun, Grímsárvirkjun, Lagarfossvirkjun og Smyrlabjargavirkjun. Uppsett afl þeirra er 37 MW.
Vefsetur: www.orkusalan.is