Forsíða
Um RARIK  |   Veftré  |  Fyrirspurnir  |  Vefpóstur starfsmanna

English version
Heimili Fyrirtæki Fréttir Viðskiptavefur







Forsíða






Heimili






Rafmagn






Heitt vatn






Reikningar og innheimta






Viðskiptaver






Eyðublöð






Holl ráð





Rafmagn

Viltu tengjast?



Verðskrá fyrir tengigjöld skiptist í tvo kafla, annars vegar fyrir þéttbýli og byggðakjarna og hins vegar fyrir dreifbýli. Sótt er um tengingu við dreikerfi RARIK á eyðublaðinu Umsókn um heimlögn (sjá skjal hér til hliðar). Fylla má eyðublaðið út í tölvunni og prentað út heima, undirrita og senda í pósti, eða fylla út eyðublað á næsta útibúi RARIK. Umsóknin þarf að berast með góðum fyrirvara. Að jafnaði eru heimtaugar aðeins afgreiddar að sumarlagi (sjá grein 1.13 og 2.15). Mikilvægt er að fylla út stærð heimtaugar í samræmi við stærðir í verðskrá.

Fylgigögn
Áður en hægt er að leggja heimtaug þarf umsækjandi að standa skil á eftirfarandi gögnum:

1.  Fylla og undirrita umsóknareyðublað og senda RARIK. Mikilvægt er að fylla út reit fyrir rétta heimtaugarstærð.
2. Fylgigögn sem þurfa að koma með umsókn:
  a. Málsett afstöðumynd, teikning sem sýnir staðsetningu aðaltöflu og aðkomu heimtauga (staðsetning byggingar á lóð).
b. Staðfest byggingarleyfi frá byggingafulltrúa.


Áður en hægt er að tengja heimtaug, þarf umsækjandi að standa skil af eftirfarandi:

1.  Greiða þarf heimtaugargjald og í sumum tilfellum getur RARIK farið fram á greiðslu heimtaugar áður en framkvæmdir hefjast.
2.  Þjónustubeiðni fyrir rafverktaka, útfyllt og undirrituð af löggiltum rafverktaka og húseiganda.
3. Raflagnateikning samkvæmt ákvæðum í tæknilegum tengiskilmálum sem inniheldur meðal annars grunnmynd með auðkenningu húsrýmis, þar sem mælakassi, aðaltafla og tengistaður jarðskauts/spennujöfnunartauga er sýndur. Sniðmynd er sýni inntak og töflur ásamt einlínumynd aðaltöflu. Málsett afstöðumynd af húsi á lóð.


Athugið að hafi gögn ekki borist innan þriggja mánaða fellur umsóknin úr gildi.

Verð og greiðsla
Tengigjald er samkvæmt verðskrá RARIK og skal staðgreiðast en möguleiki er á að gera raðgreiðslusamning. Geta þarf um í athugasemdum með umsókn hvaða greiðslumáti valinn er.

Frágangur
Lega heimtaugar frá lágspennudreifikerfi skal ákveðin í samráði við RARIK, en umsækjandi sér um gröft fyrir heimtaug innan sinna lóðamarka og annast frágang í samræmi við Tæknilega tengiskilmála raforkudreifingar (TTR), grein 4.1.2. Dýpt á skurði fyrir heimtaug þarf að vera 70 cm. Fyrir heimtaugarstrenginn skal leggja 50 mm plastpípu að lóðamörkum í þéttbýli. Í dreifbýli er ekki gerð krafa um rör út fyrir lóðamörk þar sem um langar vegalengdir er að ræða en leggja skal a.m.k 20 m af 50 mm plastpípu út frá húsi. Pípan skal ná út fyrir gróðurbelti eða svæði sem ekki er hægt að koma vélgröfu að.

Þar sem ekki er um búsetu eða reglulega starfsemi að ræða er mælir settur í mælakassa utandyra. Húseigandi leggur til mælakassa sem uppfyllir kröfur um frágang og gerð á mynd M5 í TTR og skal rafverktaki annast uppsetningu og tengingu á kostnað húseiganda. Í dreifbýli skal setja mælakassann upp utanhúss á norðurvegg eða skv. samþykktri teikningu og skal hæð undir neðri brún mælakassa vera 1,5 m.
Fylgja ber tæknilegum tengiskilmálum við frágang rafmagnsheimtauga.

Almennt
Gæta þarf að því að velja rétta stærð heimtaugar. Sérstaklega skal þetta haft í huga þar sem notaðir eru rafkynntir heitir pottar og skal ráðfæra sig við rafverktaka um val á heimtaugastærðum.

Orkutaxti og niðurgreiðslur
Nánari upplýsingar um taxtamál veitir viðskiptaver RARIK í síma 528 9000. Á rafhitunarsvæðum er nauðsynlegt að sækja um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar til Orkustofnunar, sjá http://www.os.is/.

Tæknilegir tengiskilmálar (TTR)




Allar gildandi verðskrár RARIK
Eyðublöð
Reiknivélar
Fjölmiðlaver
Er rafmagnið í lagi? Ef svo er ekki, hvetjum við þig til að fylla út kvörtunarformið okkar.
RARIK Orkuþróun




Tengt efni






Ef þig vantar upplýsingar og aðstoð sem varða orkuviðskipti þín svo sem leiðréttingar, breytingar á viðskiptum, verðskrár o.fl.








Tengt efni














Skjöl






Tengigjaldskrá rafmagns (útg. 01.05.2010)
Umsókn um heimlögn
Þjónustubeiðni fyrir rafverktaka




Fara á forsíðu

RARIK
Bíldshöfða 9
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is
 Skiptiborð:
Samband við öll svið
Sími: 528 9000
Fax: 528 9009
Opið: 08:00-16:00


BILANAVAKT allan sólarhringinn
Vesturland: 528 9390
Norðurland: 528 9690
Austurland: 528 9790
Suðurland: 528 9890