Forsíða
Um RARIK  |   Veftré  |  Fyrirspurnir  |  Vefpóstur starfsmanna

English version
Heimili Fyrirtæki Fréttir Viðskiptavefur







Forsíða






Heimili






Rafmagn






Heitt vatn






Reikningar og innheimta






Viðskiptaver






Eyðublöð






Holl ráð





Rafmagn

Er rafmagnið í lagi?



Ef þú telur að gæði rafmagnsins séu á einhvern hátt ófullnægjandi, getur þú látið okkur vita með því að hafa samband símleiðis í síma 528 9000 eða sent okkur athugasemd rafrænt. Sjá eyðublað hér til hliðar>

Ef um bilun er að ræða er hægt að hringja í bilanavakt RARIK allan sólarhringinn í eftirfarandi símanúmer eftir landshlutum: Austurland 528 9790, Norðurland 528 9690, Vesturland 528 9390 og Suðurland 528 9890.

Markmið um spennugæði

Miðað er við að rafspenna í húsum sé 230 Volt en eðlilegt er að hún sveiflist nokkuð til og frá. Ef spenna hækkar eða lækkar dofna ljósin eða lýsast. Sömuleiðis geta spennubreytingar haft áhrif á sum raftæki, en sveiflur á spennu innan leyfilegra marka á ekki að valda skaða né trufla rafmagnstæki eða raflagnir á heimilum. Gerist það getur það stafað annað hvort af því spennan sé ekki nógu góð ellegar að viðkomandi tæki sé of viðkvæmt fyrir spennufrávikum.

Spennan getur líka flökt og valdið því að ljósin blikki. Sé þetta algengt er það vísbending um að spennan sé hugsanlega ekki nógu góð.

Ýmis önnur vandamál sem tengjast rafmagni eru einnig þekkt, svo sem bjögun á spennu, ójafnvægi fasa, skammvinnt spennufall og straumleysi.

Ástæður spennuvandamála geta ýmist verið vegna flöskuhálsa í flutnings- eða dreifikerfi ellegar í kerfi notenda. Ekki er óalgengt að of lága spennu megi rekja til of lítillar heimlagnar, t.d. vegna þess að notkun hefur aukist umfram það sem upphaflega var gert ráð fyrir. Einnig er algengt spennuvandamál megi rekja til truflana frá rafmagnsækjum notenda.

Ekki síður er mikilvægt að tækin sjálf sé rétt hönnuð og í góðu ástandi svo þau vinni vel og þoli þær sveiflur sem eðlilegt er að séu í spennu frá netinu. Alls ekki er sjálfgefið að það eigi við öll rafmagnstæki og þarf að gæta vel að því við val á tækjabúnaði og við hönnun.

RARIK hefur sett sér markmið um spennugæði og afhendingaröryggi og má nálgast þau á hægri hlið síðunnar. Hafir þú grun um að rafmagninu sé ábótavant hjá þér er sjálfsagt að senda okkur ábendingu um það með því að hafa samband í síma 528 9000 eða fylla út eyðublað með því að smella hér og við munum kanna málið.




Allar gildandi verðskrár RARIK
Eyðublöð
Reiknivélar
Fjölmiðlaver
Er rafmagnið í lagi? Ef svo er ekki, hvetjum við þig til að fylla út kvörtunarformið okkar.
RARIK Orkuþróun




Tengt efni





Er rafmagnið í lagi?
Ef þú telur að gæði rafmagnsins séu á einhvern hátt ófullnægjandi, hvetjum við þig til að fylla út þetta eyðublað.








Skjöl





Markmið um spennugæði og afhendingaröryggi




Fara á forsíðu

RARIK
Bíldshöfða 9
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is
 Skiptiborð:
Samband við öll svið
Sími: 528 9000
Fax: 528 9009
Opið: 08:00-16:00


BILANAVAKT allan sólarhringinn
Vesturland: 528 9390
Norðurland: 528 9690
Austurland: 528 9790
Suðurland: 528 9890