Að fá rafmagn í hús er í dag tvíþætt þjónusta. Dreifing og flutningur orkunnar eru háð einkaleyfi og eru allir notendur í viðskiptum við dreifiveitu á sínu svæði. Framleiðsla orkunnar er aftur á móti á frjálsum samkeppnismarkaði raforkuseljenda og nú geta allir raforkunotendur sjálfir valið sér raforkusala án tillits til búsetu.
Söluaðilar á dreifisvæði RARIK eru þessir:
| Söluaðili: | | Símanúmer: |
| Fallorka | | 460 1300 |
| Hitaveita Suðurnesja | | 422 5200 |
| Orkubú Vestfjarða | | 450 3211 |
| Orkusalan | | 422 1020 |
| Orkuveita Húsavíkur | | 464 0900 |
| Orkuveita Reykjavíkur | | 516 6000 |
| Rafveita Reyðarfjarðar | | 470 9000 |
Notendur geta sjálfir haft samband við söluaðila og gert samning við hann beint. Einnig geta nýir notendur tilgreint söluaðila á umsókn um heimtaug eða tengibeiðni, en velji notendur ekki söluaðila sjálfir verður viðskiptunum beint til Orkusölunnar sem er dótturfyrirtæki RARIK.