Forsíða
Um RARIK  |   Veftré  |  Fyrirspurnir  |  Vefpóstur starfsmanna

English version
Heimili Fyrirtæki Fréttir Viðskiptavefur







Forsíða






Fyrirtæki






Rafmagn






Heitt vatn






Götulýsing






Reikningar og innheimta






Viðskiptaver






Eyðublöð






Holl ráð





Rafmagn

Tenging virkjana



Virkjanir undir 7 MW tengjast raforkukerfi landsins um kerfi dreifiveitu. Áður en framkvæmdir við virkjanir hefjast þarf nýr virkjunaraðili að hafa samband við veitusvið RARIK og kanna hvort mögulegt er að tengja virkjun af fyrirhugaðri stærð við dreifikerfið á viðkomandi stað. Hugsanlega þarf að ráðast í styrkingu kerfisins svo það sé unnt og getur það haft áhrif á tengikostnað. Í kjölfarið er gerður tengisamningur milli virkjunar og RARIK um tenginguna en eftir það er unnt að hefjast handa við lokaundirbúning verkefnisins. Þegar hönnun er lokið er unnt að gera samrekstrarsamning virkjunar og RARIK og hefja framkvæmdir.

Virkjanir sem tengdar eru dreifikerfinu greiða fast árlegt gjald fyrir tenginguna skv.verðskrá RARIK fyrir innmötun virkjana, sem háð er stærð. Vegna hagræðis sem virkjunin skapar dreifiveitunni fá virkjunir undir 300 kW síðan árlega greiðslur sem nema lækkun úttektar RARIK í afhendingarstað Landsnets. Þessar greiðslur fara hlutfallslega lækkandi með stærð (sjá verðskrá hér til hliðar). Þá þarf virkjunaraðili einnig að greiða tengigjald í upphafi, en það er háð m.a. tilkostnaði vegna tengingarinnar.

Frekari upplýsingar eru veittar í síma 528 9000 eða með því að senda tölvupóst. Sjá einnig hér hægra megin á síðunni gátlista um helstu atriði tengiferilsins, skjalasnið tengisamnings og samrekstrarsamning fyrir litlar virkjanir og stærri.

Í dag eru vel á þriðja tug virkjana af ýmsum stærðum og gerðum tengdar dreifikerfi RARIK. Nemur uppsett afl þeirra í heild um 21 MW.




Allar gildandi verðskrár RARIK
Eyðublöð
Reiknivélar
Fjölmiðlaver
Er rafmagnið í lagi? Ef svo er ekki, hvetjum við þig til að fylla út kvörtunarformið okkar.
RARIK Orkuþróun




Tengt efni













Skjöl





Gátlisti um helstu atriði tengiferilsins
Samrekstrarsamningur fyrir litlar virkjanir
Samrekstrarsamningur fyrir stærri virkjanir
Skjalasnið tengisamnings
Virkjanir: Innmötun (útg. 01.01.10)




Fara á forsíðu

RARIK
Bíldshöfða 9
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is
 Skiptiborð:
Samband við öll svið
Sími: 528 9000
Fax: 528 9009
Opið: 08:00-16:00


BILANAVAKT allan sólarhringinn
Vesturland: 528 9390
Norðurland: 528 9690
Austurland: 528 9790
Suðurland: 528 9890