Miðað er við að rafspenna í húsum sé 230 Volt en eðlilegt er að hún sveiflist nokkuð til og frá. Ef spenna hækkar eða lækkar dofna ljósin eða lýsast. Sömuleiðis geta spennubreytingar haft áhrif á sum raftæki. Spennan getur líka flökt og valdið því að ljósin blikki. Sé þetta algengt hjá þér er hugsanlegt að spennan sé ekki nógu góð. Ef svo er, eða þú telur að gæði rafmagnsins séu á annan hátt ófullnægjandi getur þú látið okkur vita með því að hafa samband símleiðis í síma 528 9000 eða fyllt út eyðublaðið hér fyrir neðan.