Forsíða
Um RARIK  |   Veftré  |  Fyrirspurnir  |  Vefpóstur starfsmanna

English version
Heimili Fyrirtæki Fréttir Viðskiptavefur
Holl ráð

Rafmagn í sumarhús



Helstu skilmálar fyrir tengingu

Lágmarksgjald fyrir rafmagnstengingu í sumarhús er samkvæmt gjaldskrá hverju sinni, og miðast við að a.m.k. eftirfarandi skilyrðum sé fullnægt (sjá nánar í tengigjaldskrá RARIK, sem er aðgengileg á www.rarik.is).

 

  • Í upphafi tengist a.m.k. 5 bústaðir hverri spennistöð sem sett er upp.
  • Í tengigjaldinu felst að meðallengd heimtauga og stofndreifikerfis fari ekki yfir 200 metra og að lengd háspennulínu sem leggja þarf, verði ekki meiri en sem nemur 100 metrum á hverja lóð.


Frágangur heimtaugar

Fyrir heimtaugastrenginn skal leggja 50 mm plastpípu að lóðarmörkum, eða a.m.k. 20 m í átt að þeim sé um meiri vegalengd að ræða. Húseigandi grefur fyrir heimtauginn innan lóðar viðkomandi húss.

 

Mælar eru settir upp utanhúss í sérstökum mælakössum sem RARIK samþykkir. Húseigandi leggur til slíkan mælakassa sem rafverktaki kemur fyrir á norðurhlið, eða skv. samþykktri teikningu, og tengir stofn og heimtaug. 

Hæð undir neðri brún mælakassa sé 1,5 m.



Umsókn

Umsókn þarf að berast með góðum fyrirvara. Að jafnaði eru heimtaugar aðeins afgreiddar að sumarlagi.

 

Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu RARIK í Reykjavík, svæðisskrifstofum og útibúum.

Ennfremur má nálgast eyðublöð á heimasíðu RARIK, http://www.rarik.is/.

Til að hægt sé að afgreiða umsókn, þarf eftir farandi að fylgja með henni:


  • Eyðublaðið "Tilkynning um rafverktöku", útfyllt og undirritað af löggiltum rafverktaka ásamt húseiganda.
  • Málsett afstöðumynd af húsi á lóð.
  • Grunnmynd þar sem mælakassi, aðaltafla og tengistaður jarðskauts er sýndur, ásamt einlínumynd aðaltöflu.
  • Byggingarleyfi staðfest af byggingarfulltrúa.

Greiðsla fyrir heimtaug

Heimtaug verður ekki tengd fyrr en gengið hefur verið frá greiðslu fyrir heimtaug. Tengigjald má annað hvort staðgreiða, eða inna af hendi með raðgreiðslum á greiðslukorti eftir þeim reglum sem þar gilda um hverju sinni.

Umsækjandi skal geta þess í athugasemdum með umsókn, hvernig greiðslumáta hann velur.



Heitir pottar

Þeir sem vilja setja upp heitan pott í eða við sumarhúsið sitt þurfa að huga vel að þeim kostum sem í boði eru. Segja má að valið standi fyrst og fremst á milli rafmagnspotts og gas- eða viðarkynnta potta, og svo hitaveitupotta þar sem hitaveita er í boði.

 

Ef kalt vatn og rafmagn er til staðar í sumarhúsinu en hitaveita ekki, getur rafmagnspottur tvímælalaust verið hagkvæmur kostur með tilliti til heildarverðs, þ.e. samanlagðan stofn- og rekstrarkostnað. Kynntu þér málið!

 

Með ósk um ánægjuleg viðskipti,



Allar gildandi verðskrár RARIK
Eyðublöð
Reiknivélar
Fjölmiðlaver
Er rafmagnið í lagi? Ef svo er ekki, hvetjum við þig til að fylla út kvörtunarformið okkar.
RARIK Orkuþróun
Fara á forsíðu

RARIK
Bíldshöfða 9
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is
 Skiptiborð:
Samband við öll svið
Sími: 528 9000
Fax: 528 9009
Opið: 08:00-16:00


BILANAVAKT allan sólarhringinn
Vesturland: 528 9390
Norðurland: 528 9690
Austurland: 528 9790
Suðurland: 528 9890