Forsíða
Um RARIK  |   Veftré  |  Fyrirspurnir  |  Vefpóstur starfsmanna

English version
Heimili Fyrirtæki Fréttir Viðskiptavefur
Holl ráð

Rafmagn á heimilum



Hvað færðu fyrir eina kWh?
Orkunotkun heimilstækja er mismunandi og er háð afli, sem mælt er í wöttum (W) eða kílówöttum (kW), og notkunartíma sem mældur er í klukkustundum (h). Orkunotkun er því margfeldi afls og tíma og er mæld í kílówattstundum (kWh).Með því að áætla notkun heimilstækja út frá reynslutölum, má reikna með að með einni kílówattstund getir þú t.d.

*Hellt upp á 60-70 bolla af kaffi
*Ristað 20-25 brauðsneiðar
*Horft á sjónvarp í 10 klukkustundir
*Notað 40W lampa í 25 klukkustundir
*Ryksugað í 4 klukkustundir
*Hlustað á útvarp í 200 klukkustundir eða 5 vikur(hve mikið myndu rafhlöður kosta?)

Hér eru nokkur atriði sem vert er að hafa í huga og geta dregið úr orkunotkun á heimilinu.


Lýsing:

Notið rétta ljósgjafa
Rétt val á ljósgjafa er mikilvægt. Notið ekki stærri perur en þið þurfið og gætið að því að lampabúnaðurinn dragi ekki um of úr birtu. Notið flúorpípur þar sem þess er kostur

Notið ljósa liti í umhverfið
Umhverfið ræður miklu um hve mikla lýsingu þarf. Ljósir litir á lofti, veggjum, gluggatjöldum og gólfum geta sparað mikla lýsingu. Haldið lömpum hreinum.

Slökkvið á eftir ykkur
Munið að slökkva á eftir ykkur. Oft loga ljós að óþörfu þar sem engin hefst við. Slíkt getur einnig skapað eldhættu.

Þvottatækin:

Skolið í köldu vatni
Skolun með köldu vatni fyrir þvott getur sparað orku. Hvort sem um er að ræða þvottavél fyrir klæðnað eða leirtau, er hægt að sleppa forþvotti fyrir vikið.

Fyllið þvottavélina
Fyllið þvottavélina og nýtið hana þannig til fullnustu. Það munar litlu á orkunotkun á fullri vél og hálfri. Því er mikill sparnaður í að þvo eina fulla vél frekar en tvær hálfar.

Veljið rétt þvottakerfi
Margar vélar eru með sparnaðarstillingar. Með því að nota þær, er hægt að spara töluverða orku. Notið ekki hærra hitastig en nauðsynlegt er.

Kæliskápur & frystir:

Hæfilegt hitastig
Margir freistast til að hafa kæli- eða frystiskápinn kaldari en þörf er á, en við hverja gráðu sem hitinn lækkar, eykst rafmagnsnotkun umtalsvert. Hæfilegt hitastig í kæliskáp er +5°C, en í frysti um -18°C. Hafið hitamæli í skápnum.

Athugaðu aðstæður
Kæliskápurinn skilar hita frá sér um kæligrindina á bakinu. Hún þarf að vera hrein og nægilegt loftrými á bak við og ofan við skápinn til kælingar. Þetta ræður miklu um orkunotkun. Eins er nauðsynlegt að gæta að þéttikantar hurðar séu ekki orðnir harðir og óþéttir.

Nýtið frystinn vel
Tómur frystir notar ekki minni orku en fullur. Þar sem frystirinn er oft eitt orkufrekasta heimilstækið, er skynsamlegt að nýta hann vel, ellegar tæma hann alveg og slökkva á honum þegar þörfin fyrir hann er ekki til staðar.



Allar gildandi verðskrár RARIK
Eyðublöð
Reiknivélar
Fjölmiðlaver
Er rafmagnið í lagi? Ef svo er ekki, hvetjum við þig til að fylla út kvörtunarformið okkar.
RARIK Orkuþróun
Fara á forsíðu

RARIK
Bíldshöfða 9
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is
 Skiptiborð:
Samband við öll svið
Sími: 528 9000
Fax: 528 9009
Opið: 08:00-16:00


BILANAVAKT allan sólarhringinn
Vesturland: 528 9390
Norðurland: 528 9690
Austurland: 528 9790
Suðurland: 528 9890