Þeir sem vilja setja upp heitan pott í eða við sumarhúsið sitt þurfa að huga vel að þeim kostum sem í boði eru. Segja má að valið standi fyrst og fremst á milli rafmagnspotts og gas- eða viðarkynnta potta, og svo hitaveitupotta þar sem hitaveita er í boði.
Ef kalt vatn og rafmagn er til staðar í sumarhúsinu en hitaveita ekki, getur rafmagnspottur tvímælalaust verið hagkvæmur kostur með tilliti til heildarverðs, þ.e. samanlagðs stofn- og rekstrarkostnaðar.
Það kemur allt með kalda vatninu! Þetta gamla og góða orðtak stendur alltaf fyrir sínu. Staðreyndin er sú að þú þarft ekki hitaveitu fyrir heita pottinn þinn. Það getur borgað sig að nota kalda vatnið og hita það upp með rafmagni.
Hvernig þá? Gengið er út frá þeiri forsendu að kalt vatn og rafmagn sé til staðar, en hitaveita ekki. Mörgum sumarhúsaeigendum hefur verið boðið að taka þátt í hitaveituframkvæmdum með nokkrum tilkostnaði með það fyrir augum að draga úr hitunarkostnaði og fá vatn í heita pottinn. Að mörgu þarf að hyggja áður en slíku boði er tekið. Hver er ávinningurinn þegar upp er staðið? Hve mikil er útgjöldin vegna tengingar, breyttra lagna og frárennslis heita vatnsins? Hvernig er hitastig vatnsins? Er sírennsli eða þarf að kaupa nokkuð magn af hálfköldu vatni áður en viðunandi hitastig næst? Hvað verður um heita vatnið eftir að varminn hefur verið nýttur? Ef um sírennsli er að ræða (hemlar) og 3 lítrar á mínútu er keyptir, renna allt að 4300 lítrum á dag eða allt að 134 tonnum af vatni á mánuði. Fer hitaveitufrárennslið í næsta læk eða í rotþróna? Hvað kosta rafmagnspottar og hver er rekstrarkostnaðurinn?
Vandaðu valið Þegar svör liggja fyrir við þessum spurningum og fleiri, er alls ekki ólíklegt að rafmagnspotturinn verði fyrir valinu. Til eru rafmagnspottar sem eru svo meðfærilegir að auðvelt er að nota þá við sumarhúsið á sumrin og við heimilið á veturna! Niðurstaðan getur verið mjög mismunandi eftir aðstæðum, en fullyrða má að pottur með rafhituðu vatni er sannarlega raunhæfur valkostur.
Gæta þarf að því að velja rétta stærð heimtaugar. Sérstaklega skal þetta haft í huga þar sem notaðir eru rafkynntir heitir pottar og skal ráðfæra sig við rafverktaka um val á heimtaugastærðum.
RARIK Bíldshöfða 9 110 Reykjavík Kt. 520269-2669 Netfang: rarik@rarik.is
Skiptiborð: Samband við öll svið Sími: 528 9000 Fax: 528 9009 Opið: 08:00-16:00