Forsíða
Um RARIK  |   Veftré  |  Fyrirspurnir  |  Vefpóstur starfsmanna

English version
Heimili Fyrirtæki Fréttir Viðskiptavefur







Forsíða






Heimili






Rafmagn






Heitt vatn






Reikningar og innheimta






Viðskiptaver






Eyðublöð






Holl ráð





Holl ráð

Straumlaust



FLESTIR ERU HÁÐIR RAFMAGNI
Rafmagn er fyrir löngu orðið svo sjálfsagt í daglegu lífi okkar, að fæstir hugsa út í mikilvægi þess fyrr en það fer af. Það er fátt sem ekki er að einhverju leyti háð rafmagni. Án rafmagns væri hvorki útvarp né sjónvarp, iðnaður myndi stöðvast og híbýli myrkvast og kólna. Hér á árum áður brá mönnum ekki svo mjög í brún þótt rafmagnslaust yrði svo dögum skipti, en sem betur fer er slíkt orðið fátítt. Með bættu dreifikerfi og aukinni þjónustu hefur tekist að draga mjög úr hættu á langvarandi rafmagnsleysi, enda er mikið í húfi þar sem verðmætar afurðir geta farið forgörðum.

Rafmagnsveiturnar eru með bilanavaktir, svo ávallt er hægt að ná sambandi við einhvern starfsmann, ef bilun verður. Útköll vegna bilana um helgar og miðjar nætur eru þó kostnaðarsamar og því er mikilvægt að notendur geri sér grein fyrir því hvort rafmagnsleysi stafar af bilun í eigin raflögn eða í veitukerfinu.


LEKASTRAUMSROFINN
Í rafmagnstöflum flestra húsa er svokallaður LEKASTRAUMSROFI. Her er um að ræða mikilvægt öryggistæki, sem getur bjargað mannslífum og komið í veg fyrir stórtjón. Margir sem létu setja upp hjá sér slíkan rofa voru ekki allskostar ánægðir með hann í byrjun. Rofinn átti það til að "slá út" af minnsta tilefni, af því er virtist. En ástæðan er sú, að rofinn "kjaftaði frá" göllum í raflögninni eða tækjum, sem tengdust henni. Til þess að fá frið fyrir rofanum varð að láta lagfæra lögnina.

EF RAFMAGNIÐ FER
Ef rafmagnið fer af hjá þér, skaltu byrja á því að athuga hvort lekastraumsrofinn hefur slegið út. Reyndu að setja hann inn aftur. Ef það tekst ekki eða þá að hann slær aftur út, er best að fá rafvirkja til þess að líta á lögnina. En þar sem ekki er alltaf hægt að fá viðgerðarmann samstundis, er ef til vill hægt að finna bilunina á eftirfarandi hátt:

*Takið út öll greinivörin (öryggin), en ekki aðalvörin.

*Setjið lekastraumsrofann inn. Ef rofinn rýfur aftur, er þörf á að leita til rafvirkja.

*Ef rofinn rýfur ekki, setjið þá greinivörin inn, eitt af öðru. Rofinn á nú að rjúfa um leið og var (öryggi) hins bilaða hluta er sett inn.

*Öll raftæki, sem tengd eru bilaða hlutanum, eru nú tekin úr sambandi eða slökkt á þeim og rofinn settur inn að nýju.

*Ef rofinn rýfur nú, er bilunin á föstu lögninni.

*Ef rofinn rýfur ekki, er bilunin í tækjum. Bilaða tækið er nú hægt að finna með því að tengja tækin á ný, eitt af öðru.

*Til lagfæringar á biluninni er ráðlegast að leita til rafvirkja.

Prófhnappur er á lekastraumsrofanum. Ef þrýst er á hann, á lekastraumsrofinn að rjúfa. Til öryggis er best að prófa þetta tvisvar til þrisvar sinnum á ári hverju.

Ef lekastraumsrofinn er inni og rafmagnslaust samt sem áður, er einn viðbótarmöguleiki á bilun innanhúss. Höfuðvarið í aðaltöflunni getur hafa rofið. Ef sú er raunin, er líklegt að eitthvað alvarlegt sé að lögninni. Það getur líka verið, að of mikið álag hafi verið sett á lögnina. Athugaðu þetta vel og skoðaðu töfluna, sem sýnir hve mikið álag hvert var þolir.
En umfram allt:
FARÐU AÐ ÖLLU MED GÁT! GERÐU EKKERT NEMA ÞAÐ SEM ER ÖRUGGLEGA Á ÞÍNU FÆRI! LEITAÐU TIL FAGMANNS!

BILUN Í VEITUKERFINU
Veitukerfið getur brugðist, sérstaklega í strjálbýli, þegar illa viðrar. Ef rafmagnið fer og þú hefur gengið úr skugga um að ekki sé um innanhússbilun að ræða, skaltu hafa samband við bilanavakt RARIK til að tilkynna straumleysið.  Áður en tilkynnt er um bilun til RARIK, er skynsamlegt að líta út og gera lauslega könnun á því hvort ljós er í næstu húsum, eða bæjum. Slíkar upplýsingar geta oft flýtt fyrir viðgerð. Stutt og greinargóð tilkynning flýtir einnig fyrir.

Hafa ber í huga að mikið álag getur orðið á símkerfið þegar víðtækt straumleysi er, þannig að erfitt getur reynst að ná sambandi við bilanavakt. Slíkt bendir einnig til þess að margir séu þegar búnir að tilkynna um straumleysið. Vinsamlegast sýnið biðlund.

SÝNDU ÞOLINMÆÐI
Þegar rafmagnið fer, raskast margt og ef um alvarlegar bilanir er að ræða, geta liðið klukkustundir áður en viðgerð lýkur. Það getur verið erfitt að bíða í dimmu, hálf köldu húsi um hávetur og geta ekki einu sinni hitað sér kaffisopa. En það er ennþá erfiðara að berjast áfram í vonskuveðri og stundum um torsótta vegu til viðgerða á línum. Þú getur treyst því, að allt er gert sem hægt er til þess að koma rafmagninu á að nýju. Sýndu því þolinmæði.


Allar gildandi verðskrár RARIK
Eyðublöð
Reiknivélar
Fjölmiðlaver
Er rafmagnið í lagi? Ef svo er ekki, hvetjum við þig til að fylla út kvörtunarformið okkar.
RARIK Orkuþróun
Fara á forsíðu

RARIK
Bíldshöfða 9
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is
 Skiptiborð:
Samband við öll svið
Sími: 528 9000
Fax: 528 9009
Opið: 08:00-16:00


BILANAVAKT allan sólarhringinn
Vesturland: 528 9390
Norðurland: 528 9690
Austurland: 528 9790
Suðurland: 528 9890