Forsíða
Um RARIK  |   Veftré  |  Fyrirspurnir  |  Vefpóstur starfsmanna

English version
Heimili Fyrirtæki Fréttir Viðskiptavefur







Forsíða






Fyrirtæki






Rafmagn






Heitt vatn






Götulýsing






Reikningar og innheimta






Viðskiptaver






Eyðublöð






Holl ráð





Heitt vatn

Viltu tengjast?



Sótt er um tengingu við dreikerfi RARIK á eyðublaði (Sjá eyðublað hér til hliðar). Fylla má eyðublaðið út í tölvunni og prentað út heima, undirrita og senda í pósti, eða fylla út eyðublað á næsta útibúi RARIK. Umsóknin þarf að berast með góðum fyrirvara. Að jafnaði eru heimæðar aðeins afgreiddar að sumarlagi.  Mikilvægt er að fylla út stærð heimæðar í samræmi við stærðir í gjaldskrá.

Þegar kemur að tengingu skal hafa samband við viðskiptaver í síma 528 9000.
 
Fylgigögn
Til að hægt sé að afgreiða umsókn um heimlögn í dreifbýli þarf að fylgja með henni staðfest byggingarleyfi, staðfest og málsett afstöðumynd af húsi á lóð (Byggingarnefndar teikning). Þessum gögnum þarf ekki að skila sé sótt um heimlögn í þéttbýli.

Verð og greiðsla
Tengigjald er skv. verðskrá RARIK um sölu á heitu vatni. Ganga þarf frá greiðslu áður en heimæð er lögð, annað hvort með staðgreiðslu eða raðgreiðslusamningi. Geta þarf um í athugasemdum með umsókn hvaða greiðslumáti valinn er.

Frágangur
Lega heimlagnar skal ákveðin í samráði við RARIK, en umsækjandi sér um gröft fyrir heimlögn innan sinna lóðarmarka og annast frágang. Dýpt á skurði fyrir heimlögn þarf að vera 70 cm. Fyrir heimlögnina skal leggja X mm plastpípu að lóðamörkum eða a.m.k. 20 m í átt að þeim sé um meiri vegalengd að ræða. Pípan skal ná út fyrir gróðurbelti eða svæði sem ekki er hægt að koma vélgröfu að.

Þar sem ekki er um búsetu eða reglulega starfsemi að ræða er mælir settur í mælakassa utandyra. Húseigandi leggur til mælakassa og skal verktaki annast uppsetningu og tengingu á kostnað húseiganda. Í dreifbýli skal setja mælakassann upp utanhúss á norðurvegg eða skv.samþykktri teikningu og skal hæð undir neðri brún mælakassa vera 1,5 m. Mælakassi skal vera sameiginlegur heimæð fyrir raflögn verði því við komið.

Sumarhús
Í sumarhúsi skal setja hemla í stað mælis. Tryggja þarf lágmarksrennsli á þeim tímum sem húsið er ekki í notkun.

Orkutaxti
Nánari upplýsingar um taxtamál veitir viðskiptaver RARIK í síma 528 9000.



Allar gildandi verðskrár RARIK
Eyðublöð
Reiknivélar
Fjölmiðlaver
Er rafmagnið í lagi? Ef svo er ekki, hvetjum við þig til að fylla út kvörtunarformið okkar.
RARIK Orkuþróun




Tengt efni






Ef þig vantar upplýsingar og aðstoð sem varða orkuviðskipti þín svo sem leiðréttingar, breytingar á viðskiptum, verðskrár o.fl.








Skjöl






Umsókn um heimlögn




Fara á forsíðu

RARIK
Bíldshöfða 9
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is
 Skiptiborð:
Samband við öll svið
Sími: 528 9000
Fax: 528 9009
Opið: 08:00-16:00


BILANAVAKT allan sólarhringinn
Vesturland: 528 9390
Norðurland: 528 9690
Austurland: 528 9790
Suðurland: 528 9890