Forsíða
Um RARIK  |   Veftré  |  Fyrirspurnir  |  Vefpóstur starfsmanna

English version
Heimili Fyrirtæki Fréttir Viðskiptavefur







Forsíða






Heimili






Rafmagn






Heitt vatn






Reikningar og innheimta






Viðskiptaver






Eyðublöð






Holl ráð





Reikningar og innheimta

Skýringar á reikningum og innheimtumálum



Viðskiptaver
Viðskiptaver RARIK svarar öllum helstu fyrirspurnum varðandi orkureikninga. Hægt er að komast í samband við Viðskiptaverið í síma 528 9000 eða með því að senda tölvupóst á vidskiptaver@rarik.is

 

Reikningagerð

Heimili og lítil fyrirtæki fá að öllu jöfnu reikninga mánaðarlega. Lesið er á mæla einu sinni á ári og í kjölfar álesturs er sendur út uppgjörsreikningur. Við uppgjör endurreiknast áætluð ársnotkun og áætlaður árskostnaður.  Hvoru tveggja kemur fram á reikningum.

 

Hjá stærri orkukaupendum er lesið tvisvar á ári, jafnvel mánaðarlega.

 

Greiðslumátar

Boðið er upp á net-, boð- og beingreiðslur auk hefðbundins greiðsluseðils. Greiðsluseðill ber aukagjald, seðilgjald.  Stór fyrirtæki með marga notkunarstaði eiga kost á rafrænum viðskiptahætti í gegnum SPAN viðskiptaþjónustu (sjá www.span.is).

 

Netbankar

Orkukaupendur sem kjósa að greiða raforkunotkun sína með netgreiðslu eða með greiðsluseðli geta greitt í netbönkum. Beingreiðslur skuldfærast sjálfkrafa, en kröfur sem greiðast með kreditkortum eru sendar til viðkomandi kortafyrirtækja.  Sundurliðun (útlit) reikninga er ekki hægt að sjá í netbönkum en RARIK er með eigin viðskiptavef, sjá neðar, þar sem nytsamar upplýsingar koma fram.

 

Innheimta

RARIK rekur eigin innheimtudeild.  Fylgt er ströngum verklagsreglum um útsendingu innheimtubréfa. Kostnaður við fyrstu aðvörun er kr. 2.000 án VSK. Búast má við fyrstu aðvörun um 20-25 dögum eftir gjalddaga (eindaga).  Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga.

 

Viðskiptavefur

Orkukaupendur hafa aðgang að viðskiptavef, en þar má skoða viðskiptaupplýsingar svo sem mælastöður og reikninga (útlit).  Til þess að komast inn á viðskiptavef þarf viðskiptanúmer og lykilorð, en hvoru tveggja kemur fram á reikningum.  Einnig er hægt að fá lykilorð sent í heimabanka.

 



Allar gildandi verðskrár RARIK
Eyðublöð
Reiknivélar
Fjölmiðlaver
Er rafmagnið í lagi? Ef svo er ekki, hvetjum við þig til að fylla út kvörtunarformið okkar.
RARIK Orkuþróun
Fara á forsíðu

RARIK
Bíldshöfða 9
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is
 Skiptiborð:
Samband við öll svið
Sími: 528 9000
Fax: 528 9009
Opið: 08:00-16:00


BILANAVAKT allan sólarhringinn
Vesturland: 528 9390
Norðurland: 528 9690
Austurland: 528 9790
Suðurland: 528 9890