Forsíða
Um RARIK  |   Veftré  |  Fyrirspurnir  |  Vefpóstur starfsmanna

English version
Heimili Fyrirtæki Fréttir Viðskiptavefur







Forsíða






Fréttir






Tilkynningar





Öskufall gæti valdið rafmagnstruflunum


15 apr. 2010 16:07


Hjá RARIK var búið að vinna viðbragðsáætlun vegna hugsanlegs eldgoss í Eyjafjallajökli áður en fór að gjósa á Fimmvörðuhálsi laugardaginn 20. mars síðastliðinn. Viðbragðsáætlunin tók mið af þeim aðstæðum sem skapast gætu við eldgos í jöklinum út frá þeim heimildum sem til voru og þeim áhrifum sem jarðfræðingar töldu að eldgos undir jöklinum gætu haft.


Viðbragðsáætlunin miðast við að halda raforkudreifikerfinu gangandi eins lengi og mögulegt er með nægjanlegum mannafla, varaefni og færanlegum varavélum og þannig að lágmarka áhrif straumleysis ef til skemmda kemur á dreifikerfinu vegna flóða og öskufalls.


Gosið á Fimmvörðuhálsi hafði engin áhrif á raforkudreifikerfið, frekar en önnur mannvirki í byggð. Þrátt fyrir mikil flóð samfara gosinu í toppgíg Eyjafjallajökuls hefur allt dreifikerfi RARIK á hamfarasvæðinu staðist áraunina hingað til og ekkert straumleysi orðið, þrátt fyrir að hluti kerfisins liggi yfir mestu flóðasvæðin. Miðað við spá jarðfræðinga á flóðahættu má telja líklegt að ekki verði truflanir af þeim sökum.


Hins vegar er það þekkt að öskufall getur haft slæm áhrif á loftlínudreifikerfi raforku og orsakað yfirslætti og útleysingar með tilheyrandi rafmagnstruflunum. Brugðist er við slíkum truflunum með því að þrífa einangrara á spennistöðvum og línum, sem getur verið tafsöm aðgerð.  Rétt er að viðskiptavinir RARIK, á þeim svæðum þar sem vart verður við öskufall, búi sig undir rafmagnstruflanir sem gætu jafnvel staðið um nokkurn tíma.


Þekkt er einnig að eldingar geta verið fylgifiskur mikilla öskuskýja. Raforkukerfið er varið fyrir eldingum en þó er ekki hægt að útiloka að eldingar valdi truflun og tjóni á raforkukerfinu.


Þrátt fyrir töluvert öskufall víða í V-Skaftafellssýslu hafa engar truflanir orðið enn sem komið er. Allt verður gert sem mögulegt er til að draga úr hugsanlegu straumleysi af völdum öskufalls.




Allar gildandi verðskrár RARIK
Eyðublöð
Reiknivélar
Fjölmiðlaver
Er rafmagnið í lagi? Ef svo er ekki, hvetjum við þig til að fylla út kvörtunarformið okkar.
RARIK Orkuþróun
Fara á forsíðu

RARIK
Bíldshöfða 9
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is
 Skiptiborð:
Samband við öll svið
Sími: 528 9000
Fax: 528 9009
Opið: 08:00-16:00


BILANAVAKT allan sólarhringinn
Vesturland: 528 9390
Norðurland: 528 9690
Austurland: 528 9790
Suðurland: 528 9890