Forsíða
Um RARIK  |   Veftré  |  Fyrirspurnir  |  Vefpóstur starfsmanna

English version
Heimili Fyrirtæki Fréttir Viðskiptavefur







Forsíða






Fréttir






Tilkynningar





Aðalfundur RARIK var haldinn 26. mars í Reykjavík


30 mar. 2010 11:25
Árni Steinar Jóhannsson formaður stjórnar RARIK flytur ávarp í upphafi aðalfundarins
Árni Steinar Jóhannsson formaður stjórnar RARIK flytur ávarp í upphafi aðalfundarins


Aðalfundur RARIK var haldinn sl. föstudag í húsakynnum fyrirtækisins í Reykjavík.

 

Í ávarpi Árna Steinars Jóhannssonar formanns stjórnar RARIK kom fram að liðið starfsár hafi verið fyrirtækinu erfitt vegna mikils fjármagnskostnaðar og að gripið hafi verið til róttækra aðgerða til að bregðast við yfirvofandi gjaldfellingu lána eða vaxtaálagi vegna ákvæða í lánasamningum við erlenda lánadrottna. Einnig kom fram að hefja þyrfti umræðu um nýtt fyrirkomulag niðurgreiðslna til jöfnunar á raforkukostnaði.

 

Í máli Tryggva Þórs Haraldssonar forstjóra RARIK kom m.a. fram að rekstrarhagnaður af starfsemi RARIK samstæðunnar fyrir fjármagnsliði (EBIT) á árinu 2009 var 1.731 milljónir krónar sem er betra en áætlanir gerðu ráð fyrir. Rekstrarafkoman var mun betri en 2008 sem að stórum hluta má rekja til hækkunar gjaldskrár og hagkvæmrar eigin raforkuframleiðslu en einnig þeirra aðgerða sem ráðist var í til að lækka rekstrarkostnað og fólust m.a. í niðurskurði aðkeyptrar þjónustu og annars rekstrarkostnaðar, samningum við starfsmenn um tekjuskerðingu og styttingu vinnutíma,

 

Þórhallur Arason kvaddi sér hljóðs og bar fundinum kveðju Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra, sem ekki gat mætt á fundinn en hann var staddur erlendis.

 

Stjórn RARIK frá aðalfundi 2010 til aðalfundar 2011 helst óbreytt frá árinu á undan og er þannig skipuð:

  • Árni Steinar Jóhannsson, formaður
  • Ingibjörg Sigmundsdóttir, varaformaður
  • Huld Aðalbjarnardóttir, ritari
  • Hilmar Gunnlaugsson 
  • Valdimar Guðmannsson



Allar gildandi verðskrár RARIK
Eyðublöð
Reiknivélar
Fjölmiðlaver
Er rafmagnið í lagi? Ef svo er ekki, hvetjum við þig til að fylla út kvörtunarformið okkar.
RARIK Orkuþróun




Skjöl





Aðalfundur 2010 - fundargerð
Ársskýrsla 2009
Erindi Árna Steinars Jóhannssonar formanns stjórnar á aðalfundi 2010
Skýrsla stjórnar og forstjóra RARIK fyrir árið 2009




Fara á forsíðu

RARIK
Bíldshöfða 9
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is
 Skiptiborð:
Samband við öll svið
Sími: 528 9000
Fax: 528 9009
Opið: 08:00-16:00


BILANAVAKT allan sólarhringinn
Vesturland: 528 9390
Norðurland: 528 9690
Austurland: 528 9790
Suðurland: 528 9890