Ákveðið hefur verið að hækka verðskrá RARIK fyrir sölu á heitu vatni þann 1. apríl 2010 um 10%. Verðhækkunin tekur mið af gengis- og verðlagsþróun á undanförnum misserum. Vegna aðstæðna á fjármálamarkaði og gríðarlegra kostnaðarhækkana á aðföngum verða fjárfestingar vegna hitaveitna RARIK árið 2010 í lágmarki.