Forsíða
Um RARIK  |   Veftré  |  Fyrirspurnir  |  Vefpóstur starfsmanna

English version
Heimili Fyrirtæki Fréttir Viðskiptavefur







Forsíða






Fréttir






Tilkynningar





Verð á dreifingu rafmagns hækkar


30 des. 2009 14:47


Verðskrá RARIK fyrir dreifingu á raforku hækkar um 10% að jafnaði hinn 1. janúar 2010. Þá hækkar virðisaukaskattur á almenna raforkunotkun úr 24,5% í 25,5%.

 

Hækkun RARIK er svolítið mismunandi eftir verðskrárliðum og er hækkunin heldur minni hjá stærri notendum  en hjá smærri notendum. Hækkunin er fyrst og fremst tilkomin vegna verðlagshækkana, hækkana á aðföngum og gengisþróunar. Þrátt fyrir þessa hækkun verðskrár fullnýtir RARIK sér ekki þær tekjuheimildir sem fyrirtækið hefur skv. lögum. Hjá þeim viðskiptavinum sem njóta niðurgreiðslna úr ríkissjóði verður hækkunin meiri, þar sem niðurgreiðslur, sem ákvarðaðar eru í fjárlögum, hafa ekki verið auknar undanfarin ár.

 

Þannig mun reikningur fyrir dreifingu raforku til heimila á hitaveitusvæðum í þéttbýli sem nota 4.000 kWst á ári hækka um 11% eða um 350 krónur á mánuði. Dreifingarkostnaður til heimila í dreifbýli sem  eru með niðurgreidda rafhitun og nota 40.000 kWst á ári hækkar um 2.350 krónur á mánuði, eða 21%.

 

Við gengisfall krónunnar á árunum 2008 og 2009  urðu öll aðföng dýrari vegna endurnýjunar og reksturs rafdreifikerfa. Erlend lán stórhækkuðu einnig og ekki útlit fyrir að þau lækki í bráð, en slík  lán nema um 40% af langtímalánum fyrirtækisins. Þetta varð til þess að RARIK tókst ekki að uppfylla  öll ákvæði sumra lánasamninga, sem við það komust í uppnám. Á  árinu 2009 var því gripið til verulegs niðurskurðar í rekstrarkostnaði og  fjárfestingum m.a. til að ná að uppfylla ákvæði lánasamninga. Nú er ljóst að þessi ákvæði verða uppfyllt vegna ársins 2009 og náðst hefur samkomulag við lánardrottna um lánasamningana.

 

Ráðstafanir til lækkunar rekstrarkostnaðar sem RARIK hefur gripið til eru meðal annars lækkun launakostnaðar og niðurskurður í aðkeyptri vinnu og þjónustu. Gerðir voru samningar við starfsmenn fyrirtækisins um lækkun á launum eða tekjum og þannig komist hjá uppsögnum starfsmanna. Almenn skerðing launakostnaðar var nálægt 100 Mkr, sem samsvarar um 6% af heildarlaunum, mest hjá þeim sem hæst hafa launin. Lækkun annars kostnaðar var samanlagt um 150-200 Mkr. Beitt var aðhaldi á öllum sviðum rekstrar og sérstaklega dregið úr fjárfestingum þar sem aðkeypt aðföng og verktakavinna var stór hluti verksins.

 

Stjórn RARIK hefur nú samþykkt aðhaldssama rekstraráætlun fyrir árið 2010. Gert er því ráð fyrir að rekstrarkostnaður verði óbreyttur í krónutölu frá árinu 2008, þegar orkuflutningur og töp í dreifikerfinu eru undanskilin. Það er sami rekstrarkostnaður og  gert var ráð fyrir í áætlun fyrir árið 2009. Þetta samsvarar um 20% lækkun almenns rekstrarkostnaðar á milli áranna 2008 og 2009 á föstu verðlagi og lækkun milli áranna 2009 og 2010 sem nemur verðlagshækkunum. Þessar ráðstafanir ásamt hækkun gjaldskrár tryggja að afkoma fyrirtækisins verði með þeim hætti að ákvæði lánasamninga verði uppfyllt.




Allar gildandi verðskrár RARIK
Eyðublöð
Reiknivélar
Fjölmiðlaver
Er rafmagnið í lagi? Ef svo er ekki, hvetjum við þig til að fylla út kvörtunarformið okkar.
RARIK Orkuþróun




Tengt efni





Nýir og auknir skattar á orku
Virðisaukaskattur hækkar úr 24,5% í 25,5% þann 1. janúar 2010. Á sama tíma leggst nýr orkuskattur á raforku 12 aurar á hverja kílówattstund.








Skjöl





Nr 14 Verðskrá fyrir dreifingu og flutning raforku (útg. 01.01.10)




Fara á forsíðu

RARIK
Bíldshöfða 9
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is
 Skiptiborð:
Samband við öll svið
Sími: 528 9000
Fax: 528 9009
Opið: 08:00-16:00


BILANAVAKT allan sólarhringinn
Vesturland: 528 9390
Norðurland: 528 9690
Austurland: 528 9790
Suðurland: 528 9890