Það var ekki bilun hjá RARIK heldur á línu Landsnets frá Búrfelli að Flúðum sem orsakaði að rafmagn fór af hjá viðskiptavinum RARIK í Hrunamannahreppi, Biskupstungum og í hluta Skeiða- og Gnúpverjahrepps um kl. 13 í gær, mánudaginn 15. mars.
Straumlaust var í rúmar 2 klukkustundir.