Forsíða
Um RARIK  |   Veftré  |  Fyrirspurnir  |  Vefpóstur starfsmanna

English version
Heimili Fyrirtæki Fréttir Viðskiptavefur







Forsíða






Fréttir






Tilkynningar





RARIK kaupir rafdreifikerfi á Húsavík


6 nóv. 2009 13:35


Orkuveita Húsavíkur ehf., sem er í eigu sveitarfélagsins Norðurþings, hefur selt raforkuhluta fyrirtækisins til RARIK ohf. og Orkusölunnar ehf.  Með kaupunum eignast RARIK rafdreifikerfi Orkuveitunnar og Orkusalan tekur við sölustarfsemi fyrirtækisins.  Orkustöðin - virkjun Orkuveitunnar og önnur dreifikerfi verða áfram í eigu Orkuveitu Húsavíkur.  Jafnframt var skrifað undir samning milli Orkuveitunnar og Orkusölunnar um kaup á framleiðslu frá virkjuninni. Samningarnir voru undirritaðir með fyrirvara um samþykki stjórna fyrirtækjanna.

 

Þann 6. nóvember 2009 skrifuðu forsvarsmenn Orkuveitu Húsavíkur annarsvegar og RARIK og Orkusölunnar hinsvegar, undir samninga um kaup síðarnefndu félaganna á raforkuhluta Orkuveitu Húsavíkur.  Fór undirskriftin fram í húsakynnum Orkuveitu Húsavíkur.  RARIK og Orkusalan munu með kaupunum yfirtaka raforkuhluta Orkuveitu Húsavíkur frá og með 1. janúar 2010. 

 

Með raforkuhlutanum er átt við dreifingu rafmagns á Húsavík og raforkusölu ásamt samningi um kaup á framleiðslu frá virkjun Orkuveitunnar. Virkjunin mun áfram verða í eigu Orkuveitunnar enda er hún samtengd rekstri hitaveitu fyrirtækisins.

 

Með kaupunum yfirtaka RARIK og Orkusalan skuldbindingar Orkuveitu Húsavíkur er snúa að raforkuhluta hennar.  Viðskiptavinir Orkuveitu Húsavíkur verða frá og með 1. janúar 2010 viðskiptavinir RARIK og Orkusölunnar eins og aðrir íbúar sveitarfélagsins Norðurþings.  Á næstu vikum munu RARIK og Orkusalan kynna nánar starfsemi sína fyrir nýjum viðskiptavinum á Húsavík.

 

Nánari upplýsingar veita Tryggvi Þór Haraldsson forstjóri RARIK ohf. í síma 528-9000, Guðrún Erla Jónsdóttir framkvæmdastjóri Orkuveitu Húsavíkur ehf. í síma 464-0900 og Magnús Kristjánsson framkvæmdastjóri Orkusölunnar ehf. í síma 422-1000.




Allar gildandi verðskrár RARIK
Eyðublöð
Reiknivélar
Fjölmiðlaver
Er rafmagnið í lagi? Ef svo er ekki, hvetjum við þig til að fylla út kvörtunarformið okkar.
RARIK Orkuþróun
Fara á forsíðu

RARIK
Bíldshöfða 9
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is
 Skiptiborð:
Samband við öll svið
Sími: 528 9000
Fax: 528 9009
Opið: 08:00-16:00


BILANAVAKT allan sólarhringinn
Vesturland: 528 9390
Norðurland: 528 9690
Austurland: 528 9790
Suðurland: 528 9890