Verðskrá RARIK fyrir dreifingu og flutning raforku hækkar frá 1. ágúst 2009 um 5%. Hækkunin er nauðsynleg til þess að mæta kostnaðarhækkunum sem þegar hafa orðið verulegar á árinu umfram það sem gert var ráð fyrir, svo sem 10% hækkun Landsnets á gjaldskrá sinni og hækkun tryggingargjalds. Fyrirtækið hefur skorið niður útgjöld til rekstrar og fjárfestinga í ár verulega og þess má geta að nær allt efni sem notað er við gerð og viðhald dreifikerfisins kemur erlendis frá og hefur því hækkað mjög vegna gengisfalls krónunnar.
Því telur fyrirtækið óhjákvæmilegt að hækka verðskrá sem þessu nemur til þess að unnt sé að standa við skyldur fyrirtækisins sem dreifiveita og jafnframt að tryggja fjárhagsgrundvöll fyrirtækisins.
Minniháttar breytingar eru gerðar á verðskrá fyrir tengingar en verðskrá fyrir svokallaða innmötun er nú skilin frá verðskrá fyrir dreifingu, en hún er vegna samskipta dreifikerfis og virkjana. Sú verðskrá fylgir að mestu verðskrá Landsnets og hækkaði um 7-10% 1. ágúst 2009.