Forsíða
Um RARIK  |   Veftré  |  Fyrirspurnir  |  Vefpóstur starfsmanna

English version
Heimili Fyrirtæki Fréttir Viðskiptavefur







Forsíða






Fréttir






Tilkynningar





Orkudreifing hækkar um 15% frá 1. janúar

Orkuverð til viðskiptavina RARIK hækkar um 7-14%

Stjórn RARIK hefur ákveðið að hækka verð fyrir dreifingu og flutning raforku um 15% um þessi áramót til þess að mæta kostnaðarhækkunum. Jafnframt hefur fyrirtækið ákveðið að skera verulega niður útgjöld frá því sem áætlanir gerðu ráð fyrir.



Viðskiptavinir RARIK fá núorðið tvo orkureikninga, annan frá RARIK fyrir dreifinguna og hinn frá sölufyrirtæki, yfirleitt Orkusölunni, dótturfyrirtæki RARIK, fyrir orkuna sjálfa. Þar sem dreifikostnaður er aðeins hluti heildarorkuverðsins til neytenda, og Orkusalan hækkar ekki verðskrá sína, er algeng heildarhækkun til venjulegra heimila í þéttbýli án rafhitunar, á bilinu 8-9%.
Áhrif á útgjöld viðskiptavina sem nota rafmagn til hitunar verða nokkru meiri og ennfremur til viðskiptavina í strjálbýli. Þar sem niðurgreiðslur ríkisins vegna rafhitunar hafa verið óbreyttar í nokkur ár, verða áhrif þeirra til lækkunar á orkukostnaði sífellt minni við hverja verðbreytingu á rafmagni. Sömu sögu er að segja um framlag til jöfnunar orkuverðs í strjálbýli.  Þessi framlög eru háð ákvörðunum stjórnvalda.  Áhrifin af framansögðu koma fram í dreifingarkostnaði, sem í einstökum tifellum getur hækkað um allt að 40%, en jafnar sig að nokkru út í heildarverðinu, sem hækkar mest um 14%.
Niðurskurður í fjárfestingum og rekstri
Í ljósi afkomu RARIK á árinu 2008, aðstæðna á fjármálamarkaði og kostnaðarhækkana á aðföngum hefur stjórn RARIK ákveðið að skera niður fjárfestingar fyrirtækisins um 600 milljónir á næsta ári, eða um fjórðung og  rekstrarkostnað um  ríflega 100 milljónir.  Þrátt fyrir það er óhjákvæmilegt að hækka verðskrá til þess að unnt sé að standa við skyldur fyrirtækisins. Með þessum aðgerðum er stefnt að því að afkoma fyrirtækisins á árinu 2009 verði á núlli miðað við fast verðlag,  þ.e. enga verðbólgu eða gengisbreytingar.
Hækkanir hjá RARIK undanfarin ár hafa verið undir almennri verðþróun og  hækkunin nú þyrfti einnig að vera meiri en sú sem ákvörðun hefur verið tekin um, sé tekið tillit til verðbólguhorfa á árinu 2009. Þrátt fyrir það hefur stjórn RARIK ákveðið að hækkunin verði einungis 15%.



Allar gildandi verðskrár RARIK
Eyðublöð
Reiknivélar
Fjölmiðlaver
Er rafmagnið í lagi? Ef svo er ekki, hvetjum við þig til að fylla út kvörtunarformið okkar.
RARIK Orkuþróun




Skjöl






Nr 12 Verðskrá fyrir dreifingu og flutning raforku (útg. 01.01.09)




Fara á forsíðu

RARIK
Bíldshöfða 9
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is
 Skiptiborð:
Samband við öll svið
Sími: 528 9000
Fax: 528 9009
Opið: 08:00-16:00


BILANAVAKT allan sólarhringinn
Vesturland: 528 9390
Norðurland: 528 9690
Austurland: 528 9790
Suðurland: 528 9890