Viðskipti hefjast með nýjan skuldabréfaflokk RARIK í Kauphöll Íslands. NASDAQ OMX Iceland hf. hefur staðfest lýsingu RARIK ohf. vegna töku skuldabréfaflokks með auðkennið RARI 09 1 til viðskipta.
Skuldabréfaflokkurinn RARI 09 1 að fjárhæð 4.000.000.000 ISK, með nafnverðseiningu 10.000.000 ISK, var gefin út 2. mars 2009. Skuldabréfin tilheyra einum flokki, njóta jafnrar stöðu innbyrðis, eru með jöfnum afborgunum, eru verðtryggð og með fasta 5,75% nafnvexti. Höfuðstóll og vextir greiðast með 40 jöfnum afborgunum, 1. mars og 1. september ár hvert. Fyrsti gjalddagi vaxta og afborgana er 1. mars 2010 og sá síðasti 1. september 2029.
Lýsingin er birt á Adobe Acrobat hér hægra megin á síðunni. Lýsinguna er hægt að nálgast í eitt ár frá birtingadegi. Sé þess óskað má nálgast prentuð eintök hjá útgefanda; RARIK ohf., Bíldshöfða 9, 110 Reykjavík.
Áætlað er að bréfin verði tekin til viðskipta 9. september 2009. Umsjónaraðili vegna töku bréfanna til viðskipta er NBI hf.
NASDAQ OMX Iceland hf. hefur staðfest lýsingu RARIK ohf. vegna töku skuldabréfaflokks með auðkennið RARI 09 1 til viðskipta.