RARIK Orkuþróun ehf. eða RARIK Energy Development Ltd. (RED) hefur opnað eigin vefsíðu, www.red.is.
Á hinni nýju vefsíðu er fjallað um hlutverk fyrirtækisins og helstu viðfangsefni þess á hverjum tíma.
Eflaust á vefsíðan eftir að þróast á næstu misserum og taka breytingum eftir því sem fyrirtækinu vex fiskur um hrygg.