Háspennuloftlínur sjást ekki lengur á Siglufirði, allar lagnir komnar í jörð. Þau tímamót verða við tilkomu Héðinsfjarðarganga að rafmagnsöryggi mun aukast og verður eins og best gerist þar sem háspennujarðstrengur alla leið frá Dalvík, um Ólafsfjörð, mun tengjast Siglufirði austan frá og hins vegar er háspennulögnin frá Skeiðsfossi. Fram til þessa hefur Siglufjörður verið á enda raflínu og treysta þurfti á dísilvélar ef truflanir urðu. Með tvöfaldri tengingu er þörf á varafli hverfandi.
Lagning 33 kV háspennustrengs til Ólafsfjarðar er komin vel á veg og er lögn hans að mestu lokið í Siglufirði um göngin til Héðinsfjarðar. Framhaldið ræðst af framkvæmdum við göngin, en vonir standa til að strenglögn verði lokið um það bil sem aðveitustöðin er tilbúin.
Hið nýja stöðvarhús er hannað af Verkfræðistofu Siglufjarðar sf, samkvæmt arktektateikningu Helga Hafliðasonar, verkfræðistofan Afl og Orka hannar raflögn hússins og starfsmenn RARIK annast verkfræðilega hönnun búnaðar aðveitustöðvarinnar. Allir háspennurofar í stöðinni verða fjarstýranlegir.
Stöðvarhúsið er 1.056 rúmetrar að stærð og grunnflötur hússins er 164 fermetrar. Byggingarframkvæmdir annast Byggingarfélagið Berg ehf.
Gert er ráð fyrir að hægt verði að hefja uppsetningu rafbúnaðar fljótlega eftir áramót og að stöðin verði tilbúin um mitt sumar. Hún verður þó ekki tekin í notkun fyrr en hægt verður að hleypa á strenginn frá Ólafsfirði um Héðinsfjarðargöng.