Stjórn RARIK hefur ákveðið að hækka verðskrá fyrir sölu á heitu vatni þann 1. mars 2009 um 11,5%. Undanfarin ár hefur verðskráin fylgt almennri verðlagsþróun í landinu og svo er einnig nú. Vegna aðstæðna á fjármálamarkaði og gríðarlegra kostnaðarhækkana á aðföngum verða fjárfestingar vegna hitaveitna RARIK árið 2009 í lágmarki.