Forsíða
Um RARIK  |   Veftré  |  Fyrirspurnir  |  Vefpóstur starfsmanna

English version
Heimili Fyrirtæki Fréttir Viðskiptavefur







Forsíða






Fréttir






Tilkynningar





Hagræðing í verðskrá



Stjórn RARIK samþykkti nýlega nokkrar breytingar á verðskrá RARIK fyrir dreifingu. Ekki er um að ræða breytingu á tekjum RARIK. Orkustofnun hefur fallist á ofangreindar breytingar með bréfi dagsettu 28. október síðastliðinn.

Í fyrsta lagi er um að ræða einföldun á töxtum auðkenndum VO110 (fyrir þéttbýli) og VO130 (fyrir dreifbýli), sem verið hafa "tvígjaldstaxtar", þ.e. taxtar með tveggja þrepa orkugjaldi, sem gerir reikningana flókna fyrir viðskiptavininn. Nú verður aðeins eitt orkugjald og fastagjald. Fastagjaldið mun hækka, en orkugjald lækka hlutfallslega.  Breytingin leiðir af sér lítilsháttar hækkun hjá þeim notendum sem nota færri en 4.000 kWh á ári, eða 1-200 krónur á mánuði , en lækkun hjá þeim sem nota milli 4.000 og 43.000 kWh á ári.  Þar á meðal eru um 14.000 heimili. Þrátt fyrir þessa hagræðingu og einföldun munu heildartekjur fyrirtækisins af töxtunum ekki breytast. Umrædd breyting tekur gildi 1. desember 2008.

Í öðru lagi er bætt við stórnotendatöxtum, annars vegar fyrir þéttbýli (VA410) og hins vegar fyrir dreifbýli (VA430), en þessum töxtum er ætlað að nýtast notendum með notkun sem er um eða  meiri en 8 GWh á ári. Töxtunum fylgja sérstakir skilmálar um uppgjör notkunar, afhendingu orkunnar, tengigjald og kerfisframlag.  Þessir taxtar taki gildi um áramótin.

Í þriðja lagi er upphæð seðilgjalds nú tilgreint í verðskrá með vísun til ákvæðis í reglugerð um framkvæmd raforkulaga.  Umrædd breyting tekur gildi 1. desember nk. Upphæð gjaldsins er óbreytt.




Allar gildandi verðskrár RARIK
Eyðublöð
Reiknivélar
Fjölmiðlaver
Er rafmagnið í lagi? Ef svo er ekki, hvetjum við þig til að fylla út kvörtunarformið okkar.
RARIK Orkuþróun




Skjöl






Nr 11 - Verðskrá fyrir dreifingu og flutning orku (útg. 01.12.08)




Fara á forsíðu

RARIK
Bíldshöfða 9
110 Reykjavík
Kt. 520269-2669
Netfang: rarik@rarik.is
 Skiptiborð:
Samband við öll svið
Sími: 528 9000
Fax: 528 9009
Opið: 08:00-16:00


BILANAVAKT allan sólarhringinn
Vesturland: 528 9390
Norðurland: 528 9690
Austurland: 528 9790
Suðurland: 528 9890